Mig langar heim til Færeyjar

Undanfarið hefur mikill söknuður ráðist á mig, ég er farinn að þrá að komast heim til Færeyjar. Við fjölskyldan sigldum þangað fyrir 4 árum og börnin elskuðu að vera þar. Það er svo mikið frelsi og allt í rólegheitunum alls staðar. Amma var enn á lífi þegar við vorum þar, en hún lést fyrir tæpum tveim árum síðan og einhvern veginn, langaði mig ekki mikið að fara þegar amma var ekki á staðnum. En yngri strákurinn er farinn að tala svo mikið um að fara aftur til Færeyjar og þá bara sigla ekki með flugi. Siglingin var líka alveg ofboðslega kósý, að rugga í svefna var æðislegt.

512_P0003647

 

 

 

 

Amma með langömmu börnunum.

 

 

 

 

 

 

 

 

512_P0003541

 

 

 

Smá Titanic fýlingur í strákunum þegar við fórum í siglingu með bróðir hennar mömmu.

 

 

 

 

 

 

 

512_P0003596

 

 

 

 

 

Frænda mínum datt í hug að prófa að sigla inn í hella, hafði aldrei farið þarna inn áður. Það var alveg geðveikt flott að fara þarna inn á bátnum.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

512_P0003618

 

 

 

 Tindhólmur, rétt hjá Mykinesi fyrir utan Sörvág.

 

 

 

 

 

 

 

 

512_P0003346

 

 

Systir mín og litla prinsessan mín aðeins að sulla og vaða á sandinum í Sörvági.

 

 

 

 

 

 

 

512_P0003643

 

 

 

 

 

Hér stendur prinsessan og bíður eftir að bræður hennar komi til baka, þeir fóru út að sigla á árabát með pabba sínum, henni var ekki treyst að fara með og var ekki sátt við það. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eiríkur Harðarson

Þar var ég frá 26. júlí 2005-10 ágúst og þótti mér það vera alveg yndislegt, fór með ferjunni keyrði um alla eyjunna þvera og endilanga. Í lokin fór ég í siglingu kringum eyjarnar það var algert æði.

Eiríkur Harðarson, 21.1.2008 kl. 19:23

2 Smámynd: Huld S. Ringsted

Yndislegar myndir, mig langar svo mikið til færeyja og er jafnvel á planinu að skreppa með Norrænu næsta sumar, ég vona að það gangi eftir

Huld S. Ringsted, 21.1.2008 kl. 23:02

3 Smámynd: Linda litla

Æðislegar myndir. Eg hef aldrei komið til Færeyja, það er eitthvað sem eg a eftir að fara. Það er alveg ljost. Myndin ur hellinum er ofsalega flott.

Linda litla, 21.1.2008 kl. 23:40

4 Smámynd: Ólafur fannberg

hef farið nokkrum sinnum til Færeyja og alltaf jafngaman að koma þangað i kyrrðina fínt að kafa þar

Ólafur fannberg, 21.1.2008 kl. 23:40

5 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Vá Ingunn! frábærar myndir, eins og þín er von og vísa. Já, Færeyjar, þær eru á planinu, einn góðan veðurdag verður maður að fara þangað og heimsækja næstu nágranna. Það hlýtur að vera bara dásamlegt!

Takk fyrir þetta ferðalag í myndum Ingunn. Vona að þér heilsist betur og betur.

Ragnhildur Jónsdóttir, 22.1.2008 kl. 15:42

6 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Frábærar myndir, mig hefur alltaf langað til Færeyja, kannski maður taki skipið fljótlega og kíki á staðinn.  Er alltaf á leiðinni með bíl til Evrópu.  Kveðja til þín.

Ásdís Sigurðardóttir, 22.1.2008 kl. 20:08

7 identicon

Oooo hvað þetta eru æðislegar myndir.  Ég skil vel að þú saknir þessa staðar.  Ég er ein af þeim sem langar svooo að fara til Færeyja.  Sé það með svona draumagleraugum að fara þangað.  Reyndar nefndi ég Færeyjar í fullri alvöru við manninn minn þegar við vorum að spá í brúðkaupsferð á sínum tíma.  Hefði svo viljað vera þar.  Þetta er í það minnsta einn af þeim stöðum sem maður VERÐUR að fara á meðan maður lifir.

Annars vona ég bara að þú sért öll í góðu formi, eins og mögulegt er snúllan mín.

Guðrún Arna Möller (IP-tala skráð) 22.1.2008 kl. 23:46

8 Smámynd: Solla Guðjóns

Flottar myndir og þá aðallega Titanicmyndin....

Björgin þarna eru tingarlega hrikaleg en það kunni ég ekki að meta er ég dvaldi þar fyrir 35.árum

Solla Guðjóns, 23.1.2008 kl. 00:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ingunn Jóna Gísladóttir

Höfundur

Ingunn Jóna Gísladóttir
Ingunn Jóna Gísladóttir
Móðir, áhugaljósmyndar og tekjuhár öryrki. Og Fjöryrki  ingunnjg@internet.is
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 512_IMG_8569
  • 512_IMG_8534
  • 512_IMG_8509
  • 512_IMG_8485
  • 512_IMG_8609

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 37837

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband