Nærgætinn Eiginmaður

Þegar konur eldast, grein eftir Jón Jónsson.

Það er mikilvægt fyrir karlmenn að muna, að eftir því sem konur eldast verður erfiðara fyrir þær að halda sömu gæðum í húsverkunum og þegar þær voru ungar. Þegar þú tekur eftir þessu, reyndu ekki að æpa á hana. Sumar konur eru ofurviðkvæmar, og það er ekkert verra til en ofurviðkvæm kona.

Ég heiti Jón. Ég ætla að segja ykkur hvernig ég tókst á við þetta ástand varðandi konuna mína - hana Siggu. Þegar ég settist í helgan stein fyrir nokkrum árum, þurfti Sigga auðvitað að fá sér heildagsvinnu meðfram hlutastarfinu, bæði til þess að auka tekjur heimilisins og halda sparnaði okkar hjóna gangandi. Fljótlega eftir að hún fór að vinna tók ég þó eftir að aldurinn fór að sjást á henni. Ég kem venjulega heim úr golfi á sama tíma og hún kemur heim úr vinnunni. Þó hún viti hvað ég er svangur, þá þarf hún næstum alltaf að hvíla sig í hálftíma áður en hún fer að elda matinn. Ég æpi þó ekki á hana. Í staðinn segi ég henni að taka þann tíma sem hún þarf og vekja mig bara þegar maturinn er kominn á borðið. Ég borða venjulega hádegismat í "Heiðursmannagrillinu" í klúbbhúsinu þannig að það er auðvitað ekkert á dagskránni að fara út að borða. Áður fyrr var Sigga vön að vaska upp um leið og við vorum búin að borða. Nú er hinsvegar ekkert óvenjulegt að það bíði jafnvel í nokkra tíma. Ég geri það sem ég get með því að minna hana á það á nærgætinn hátt að diskarnir þvoi sig ekki sjálfir. Ég veit að hún kann að meta þetta, þar sem það virðist hvetja hana til að klára uppvaskið áður en hún fer að sofa. Annað einkenni öldrunar er kvörtunaráráttan held ég. Til dæmis heldur hún því fram að það sé erfitt að finna tíma til að greiða reikningana í matartímanum. En strákar, við lofuðum að standa með þeim í blíðu og stríðu, svo ég brosi bara og býð fram hvatningu. Ég segi henni bara að dreifa þessu á tvo til þrjá daga. Þannig þarf hún ekki að flýta sér eins mikið. Ég minni hana líka á að þótt hún missi af matartímanum af og til sé það allt í lagi ( þið vitið hvað ég meina ). Mér finnst reyndar nærgætni einn af mínum betri kostum. Þegar hún vinnur einfaldari verkefni, virðist hún halda að hún þurfi fleiri hvíldarstundir. Hún varð til dæmis að taka pásu þegar hún var einungis hálfnuð með að slá blettinn. Ég reyni að vera ekki með uppistand. Ég er sanngjarn maður. Ég segi henni að útbúa sér stórt glas af nýpressuðum köldum appelsínusafa og setjast í smástund. Og þar sem hún er að gera þetta, bið ég hana að blanda einn fyrir mig í leiðinni. Ég veit að væntanlega lít ég út eins og dýrlingur vegna þess hvernig ég styð hana Siggu mína. Það er ekkert auðvelt að sýna svona mikla tillitssemi. Mörgum karlmönnum finnst það erfitt. Og mörgum finnst það alveg ómögulegt ! Það veit enginn betur en ég hversu pirrandi konur verða þegar þær eldast. En strákar, ef þið hafið lært það af þessari grein að vera nærgætnari og minna gagnrýnir á konurnar ykkar sem eru að eldast - lít ég svo á að þetta hafi verið þess virði að setja á blað. Við megum ekki gleyma því að við fæddumst á þessa jörð til hjálpa hver öðrum.

Kveðja,Jón Jónsson

Athugasemd ritstjóra:Jón Jónsson lést skyndilega þann 27. maí sl. af blæðingum í endaþarmi. Samkvæmt lögregluskýrslu fannst Calloway extra löng 50 tommu Big Bertha golfkylfa á kafi í rassgatinu á honum, þannig að aðeins stóðu tíu cm af handfanginu út, og við hliðina var sleggja.

Sigríður konan hans var handtekin og ákærð fyrir morðið. Kviðdómurinn sem eingöngu var skipaður konum var 15 mínútur að komast að niðurstöðu sem var þessi: Við föllumst á það sem fram kemur í vörn Sigríðar að Jón hafi einhvern veginn, án þess að
gera sér grein fyrir því, sest ofan á eigin golfkylfu.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Sá þennan í gær, hér eru engar golfkylfur á heimili, bara tillitssamur eiginmaður.  Flowers For You

Ásdís Sigurðardóttir, 23.2.2008 kl. 15:49

2 Smámynd: Katrín Ósk Adamsdóttir

Frábær saga  Alveg óþolandi þessi Jón,ég held að hann hafi unnið fyrir þessum örlögum  Hafðu það gott Ingunn mín og ég vona að þú sért óðum að hressast eftir aðgerðina

Katrín Ósk Adamsdóttir, 23.2.2008 kl. 15:50

3 Smámynd: Ólafur fannberg

Ólafur fannberg, 23.2.2008 kl. 16:34

4 Smámynd: Huld S. Ringsted

Góð saga!

Huld S. Ringsted, 23.2.2008 kl. 23:34

5 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

 

Bestu kveðjur á konudaginn!

Ragnhildur Jónsdóttir, 24.2.2008 kl. 16:07

6 Smámynd: Katrín Ósk Adamsdóttir

Til hamingju með daginn Ingunn mín   Flower Basket

Katrín Ósk Adamsdóttir, 24.2.2008 kl. 19:33

7 Smámynd: Solla Guðjóns

Ég var bara brjálaðri með hverri línunniEn endirinn var góður

Til hamingju með daginn

Solla Guðjóns, 24.2.2008 kl. 21:23

8 Smámynd: Linda litla

Þetta var góð saga og endirinn var eiginelga bestur hahaha

Hafðu það gott Ingunn mín og til hamingju með konudaginn í dag/gær.

Linda litla, 25.2.2008 kl. 00:48

9 Smámynd: Brynja skordal

varð smá pirruð að lesa en endar vel góð saga

Brynja skordal, 25.2.2008 kl. 11:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ingunn Jóna Gísladóttir

Höfundur

Ingunn Jóna Gísladóttir
Ingunn Jóna Gísladóttir
Móðir, áhugaljósmyndar og tekjuhár öryrki. Og Fjöryrki  ingunnjg@internet.is
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 512_IMG_8569
  • 512_IMG_8534
  • 512_IMG_8509
  • 512_IMG_8485
  • 512_IMG_8609

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 37841

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband