Færsluflokkur: Bloggar
25.10.2007 | 11:18
Dýru kremin
Ég hef nú verið að horfa á bresku þættina á skjá 1 How to look good naked. Mér finnst þessir þættir alveg ofboðslega skemmtilegir, stíllistinn gerbreytir konum, bara með sma snyrtingu og með því að breyta um fataval hjá þeim, ekki eins og Americu þar sem hnífarnir eru óspart notaðir. Í tveimur síðustu þáttunum hafa verið gerðar prófanir á kremum, í gær voru það brjóstakremi eða krem til að lifta og stinna brjóstin og í seinust viku voru það krem til að vinna cellulite/ appelsínuhúð. 100 konum var skipt í 4 hópa og voru látnar prófa þessi krem í 4 vikur, þær vissu ekki hvaða krem þær fengu, dýru eða ódýru kremin. Og viti menn það voru ódýru kremin sem höfðu vinninginn, dýru kremin fengu virkilega lélega dóma frá þessum bresku konum.
Kremið fyrir appelsínuhúðina sem kom best út var frá Nivea en ég man ekki hver var framleiðandinn sem kom best út í gær, en það var eitt af ódýru kremunum.
Ég fæ útbrot og ofnæmisviðbrögð í andlit af þessum dýru flottu kremum, t.d Lancome sem á að vera ofsalega gott, ef ég set það framan í mig þá hreinlega kviknar í andlitinu á mér, þannig að ég nota bara Nivea.
![]() |
Íslenskar konur nota 45 þúsund króna andlitskrem |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
25.10.2007 | 01:37
Góður endir á erfiðum degi
Eftir hádegi hringdi skólahjúkrunarfræðingurinn í mig og sagði mér að Stefáni hefði verið hrint og væri með mikla verki í baki og mjöðm. Við hentumst að stað og í skólann að sækja hann, hann situr hágrátandi inn hjá hjúkrunarfræðingum, og ég þurfti enn og aftur að útskýra það að hann hafði lent í slysi og væri ekki í topp formi, það er eins og það eru ekki allir að fá upplýsingarnar í skólanum. arrrrg . Hjúkkan sagðist ætla að skoða málið og hringja í mig á morgunn. En jæja við mæðginin áttum tíma í hnykk, sem hefur hjálpað okkur báðum mjög mikið.
Á meðan við bíðum hjá hnykkjaranum hringir hjúkkan í mig, var búin að tala við alla kennarana, skoða og bera saman námsárangur frá því vor og svo núna í haust, og eins og hún og kennararnir sáu er honum að hraka í náminu Hjúkkan ákvað að ræða þessi mál og hafa samband við sálfræðing sem hún vill að hann fari til. Hún var svo hneyksluð á því að læknarnir á slysó sáu enga ástæðu til að fylgjast með honum. Þannig að hún setur af stað teymi til að vinna með honum í skólanum og hún vill að drengurinn fái áfallahjálp, telur það vera alveg lífsnauðsyn fyrir hann, eins og hún segir að þá verður að huga að líkama og sál við svona slæmt slys og áfall. Jibbbbíiiiii
Svo seinna var handboltaæfing hjá honum, alveg sama hvað, hann vill ekki missa af æfingu, æeg sit alltaf og horfi á og tek hann á bekkinn, þegar ég sé að hann byrjar að fá verki og haltra. Því hann getur ekki stoppað sjálfur, vill ekki hætta út af verkjum, en líkamin er að senda skilaboð.
Við fengum tölvupóst í gær þar sem börnum sem æfir handbolta var boðið á æfingu hjá landsliðinu, ég var svo utan við mig í gær að ég tók ekki eftir því að það átti að skrá sig í gær, og Stefáni langaði svo að fara Þá ákvað ég að ég ætlaði að gera allt til að hann kæmist, sérstaklega eftir erfiðan skóladag, þá var bara að taka upp símann og hringja, fyrst í formanninn í okkar félagi og svo bara beint í gemsan hjá Róbert hjá HSÍ og þessu var bara reddað. Þvílíkt bros sem ég fékk hjá guttanum þegar hann vissi að við kæmust á landsliðsæfinguna. Á æfingunni fengu öll börn plakat af liðinu og boðsmiða á leikinn á föstudag. Við verðum þá í Laugardalshöllinni að hvetja STRÁKANA OKKAR.
Stefán og Sigfús, smá stærðarmunur
Stefán stoltur með Snorra Steini.
Alla vega góður endir á erfiðum degi, að fá að hitta hetjurnar.
Jæja 2.718 undirskriftir en minni samt enn og aftur á UNDIRSKRIFTARLISTANN
Baráttukveðjur til allra fjöryrkja
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.10.2007 | 12:19
Baráttan heldur áfram
Nú er allt að fara á fullt, maður er í baráttu alls staðar, ég stökk út í djúpulaugin með fjöryrkjahópnum, og þvílíkt fólk og baráttugleði. Samstaðan er á við vítamínsprautu í afturendan. 2352 undirskriftir komnar og við erum alls ekki hætt.
Eins og ég bloggaði um í gær er nú sonur minn loksins komin til lækna sem sjá ástæðu til að rannsaka og mynda hann betur. Svona heilbrigð skynsemi segir mér að 27 kg líkami getur ekki komið heill út úr því að fá eitt tonn af járnhrúgu á sig á 30-40 km hraða. En enn og aftur vill ég segja það að nota hjálma þegar þau eru að hjóla. Ef hann hefði ekki verið með sinn hjálm, þá væri hann ekki hér. Sá alveg eins hjálm og hann var með í Toys R us, sama merki og sama þyngd á hjálminum, og hann kostaði heilar 1.199 kr. Þannig að ég mæli með að foreldrar kíki þangað og kaupi hjálma á börnin, þó þeir eru ódýrir þá standa þeir svo sannarlega fyrir sínu.
Eftir 6 daga eða þriðjudaginn í næstu viku kl.9:15 á ég svo að mæta í Héraðsdóm Reykjavíkur, þá byrjar aðalmeðferðin í máli hjá mér gegn byggingaraðilanum sem byggði íbúðina okkar. Þetta er búið að vera hræðilega langt og dýrt ferli, en ég er þrjóskuhundur sem gefst ekki upp, er búin að standa í þessu í 7 ár. Byggingaraðilanum og lögfræðingnum þeirra finnst ég vera að kvarta að ástæðulausu, íbúðin heldur hvorki vatni né vindi, sem ég tel vera stórana galla, en ekki þeim en það er út af því að þeir þurfa ekki að búa í þessu, það er ég. Rakaskemmdir í útveggjum, þeirra lausn á því er að kynda vel og lofta út, get ekki loftað mikið betur út en ég geri, gluggarnir eru svo óþéttir að þetta er allt sjálfvirkt
Og það versta er að allir hlaðnir veggir eru að losna frá lofti og farnir að hallast til. Svo voru settar 3 mismunandi stærðir af hurðum, þeim hefur líklega þótt það svo cool, en þar af leiðandi er íbúðin ekki hæf fyrir fatlaða eins og hún átti að vera. En Guð hvað ég vona að þessu máli lýkur fljótlega, þannig að það verði loksins hægt að mála og laga hurðar og glugga, því veðráttan sem er núna á þessum tíma er alveg óþolandi, á meðan íbúðin er svona og þetta bætir ekki heilsuna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
23.10.2007 | 22:21
Brjálað að gera.
Var búin að bíða lengi eftir þessum degi, í dag átti yngri sonur minn sem lenti fyrir bíl tíma hjá heila og taugasérfræðingi, ég hef haft miklar áhyggjur af honum vegna minnisleysis, svo er hann ferlega uppstökkur og bara breyttur. Læknum á Borgarspítalanum sáu enga ástæðu til að vera að skoða eða athuga hans heilsu neitt meir, við vorum svo greinilega að trufla læknana þar upp frá.
En þessi sérfræðingur gerði helling af taugaprófum, og ákvað að senda drenginn í segulómun af höfði, mikið ofboðslega létti mér við það, mér fannst ég ekki vera að trufla hann og hann hafði áhuga og áhyggjur af þeim persónuleika breytingum sem drengurinn hefur orðið fyrir. Svo á hann að fara til taugasálfræðings sem mun skoða hann og vinna með hann.
Jæja eftir hádegið var svo komið að foreldraviðtölum í skólanum, unglingurinn minn er bara að standa sig svo geðveikt vel, svo kurteis og með frábærar einkunnir, að ég sá vængina vaxa út úr herðablöðunum á honum og það kom skær geislabaugur fyrir ofan höfuðið á honum, hann er algerlega punktalaus, sá eini í bekknum, OMG hvað ég er stolt af honum, ekki lengur skilningslausir kennarar sem kalla hann latan
, heldur skilja þeir að hann er með athylisbrest, en lyfin hjálpa alveg geðveikt mikið.
Yngri sonurinn ofboðslega duglegur og kurteis, gengur vel en er að dragast aftur úr, hefur versnað þó nokkuð í lestri og öðrum fögum, þannig að afleiðingar slyssins virðist hafa skert námsgetuna að einhverju leiti, en það er vonandi að þetta er tímabundið.
Svo var farið á handboltaæfingu, og eftir það beint út í skólann aftur á bekkjarkvöld, sem ég átti að hafa umsjón með. Úffff 50, 9 og 10 ára hress börn með raddböndin í lagi En börnin voru ánægð með bekkjarskemmtunina, að fá að sleppa sér í leikfimissalnum í tvo klukkutíma og engir kennara að skammast í þeim og segja þeim að vera stillt og hafa ekki læti, þau voru vel þreytt og sveitt þegar þau fóru heim. Við foreldrarnir sem sáum um þetta, með smá hausverk, en hann lagast, alla vega hjá þeim hinum, þau losna við sína verki
.
En eins og ég sagði í gær þá fannst mér ekki ólíklegt að undirskriftarlistinn færi á flug í dag og þegar ég loksins settist niður fyrir framan tölvuna og kíkti, þá varð maður bara klökkur 2129 búnir að skrifa, og það tikkar hratt. Frábært, æði ég gæti öskrað að gleði, ætti kannski að hringja í lögguna og fá þá að skutla mér út í Heiðmörk og öskra þar
En þið sem eruð ekki búin að skrifa á undirskriftarlistann, endilega kíkið á hann og skutlið nafni ykkar á hann hér.
Fjöryrkja baráttukveðjur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
22.10.2007 | 23:01
Fjöryrkjaviðtal í 24 stundir á morgunn
Á morgunn verður viðtal við YFIRFJÖRYRKJANA Heiðu Björk og Ásdísi, vegna undirskriftarlistana. Viðtalið tók hún Björg Eva sem skrifaði um ASI og Gylfa í seinustu viku, með fyrirsögninni "Öryrkjar eru sjálfum sér verstir. Sú fyrirsögn verður afsönnuð í viðtalinu á morgunn, reikna ég með
Ég bíð spennt eftir að lesa blaðið og vonandi að það verða þá einhver meiri viðbrögð og áhugi frá alþingismönnum og ráðherrum.
Undirskriftunum rignir inn og eru orðnar 1657, þannig að ég vonast eftir undirskriftaflóði, þegar fólk hefur lesið blaðið
Svo eru fjöryrkjar farnir að kíkja í kaffi og hittast, alveg frábærir bloggvinir
PS, ekki gleyma undirskriftarlistanum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.10.2007 | 21:40
Óhuggulegt
Hvað er í gangi hjá bretum sem fara í frí til sólarlanda með börnin sín. Er eitthvað að mér, en mér finnst þetta hálf furðulegt að móðirin hverfur.
Ég er nú bara það taugaveikluð þegar kemur að börnunum mínum og við förum erlendis, þá er ég bara með augu í hnakkanum. Maður veit aldrei hvað getur gerst, þannig að ég hleypi þeim aldrei úr augsýn einum.
![]() |
Leita móður fimm ára breskrar stúlku sem féll af hótelsvölum á Mallorca |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.10.2007 | 19:41
Skýjamynd
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.10.2007 | 17:22
Vááá þvílík samstaða.
Fjöryrkjarnir eru að afsanna þá sögu að Palli var einn í heiminum( þannig líður manni oft), 1557 undirskriftir.
Tölvan, netið, bloggið og tölvupósturinn eru greinilega hin bestu vopn fyrir svona baráttu, fréttamenn og fleirri búnir að vera í sambandi, og boltinn stækkar og stækkar. Þetta er frábær samstaða, hjartans þakkir til allra sem hafa skrifað á undirskriftarlistann og endilega haldið áfram að senda mail til allra sem þið þekkið og hafa áhuga á að styðja okkur í þessari baráttu. Við Fjöryrkjar erum komin til að vera og höldum áfram að berjast.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.10.2007 | 18:31
Myndir af Náttúrunni
Fann loksins ramma fyrir myndir sem ég tók og breytti litum í. Þetta er mynd sem ég tók í sumarbústað í Úthlíð í sumar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.10.2007 | 13:37
Söknuður, reiði, og gleði
Þegar verkirnir eru slæmir verð ég stundum alveg ferlega pirruð og reið og þá fer hausinn á fullt. Svo er það hugsanlega líka andlegt, yngri sonurinn fór á föstudaginn í bústað með nágrönnum okkar, og þetta er reyndar í fyrsta sinn sem hann fer yfir nótt eftir að hann lenti í slysinu í ágúst. Hann hefur sjálfur ekki viljað fara neitt langt frá heimilinu eftir þessa reynslu, hef tekið eftir því hvað slysið breytti honum mikið.
Ég fór með hann á endurkomuna í lok ágúst og talaði þar við yfirlækni út af þessum breytingum á drengnum, hann þjáist af mynnisleysi, höfuðverkjum og bakverkjum og er alveg ofboðslega skapstyggur stundum. Ég er sjálf hjá hnykkjara sem ég var búin að láta skoða hann og hann sá greinilega hryggskekkju, ég sagði yfirlækninum það, sem var bara með helv... stæla og spurði hvort hann ætti að taka upp verkfærin, svo sagðist hann ekki sjá neina ástæði til að skoða hann eða mynda hann neitt meir, á slysó var tekin tölvusneiðmynd af höfði og hann var límdur og saumaður og svo sendur heim. Ég var alveg brjáluð eftir að hafa talað við þennan lækni á endurkomunni, við fórum í heimsókn til mömmu og pabba, sagði mömmu sem vinnur á BSP hvað læknirinn hafði sagt, hún var snögg að hringja og hella sér yfir hann.
Hnykkjarinn tók röntgenmynd af syni mínum og var mikill hryggskekkja hjá honum og miklar bólgur og tog í öllum vöðvum í bakinu, guð hvað mig langaði að fara og drepa helvítis lækninn á endurkomunni, sem mér fannst gefa skít í heilsu sonar míns. Lögfæðingur ráðlagði mér að fara reglulega með hann til heimilislæknis og láta fyrlgjast með og skrá allar kvartanir hjá honum, sem sendi okkur áfram til barnasérfræðings, hann sagði að það væri ekki séns á að svona lítill líkami gæti lent í því að fá eins tonna bíl á sig á 30-40 km hraða og sloppið alveg óskaddaður frá svoleiðis höggi. Höfuðið á honum fór í húddið, svo í framrúðuna sem brotnaði og eftir það flaug hann yfir bílinn og lenti hinum meginn á gatnamótunum og þar skall höfuðið aftur í kannststeininn. Barnalæknirinn sendi mig svo áfram með sonin til heila og taugasérfræðings, það er búin að vera 6 vikna bið, ofboðslega er tíminn búin að vera lengi að líða, en þriðjudagurinn er alveg að koma. Það sem bjargaði lífi hans var kúluhjálmurinn sem hann var með, en ég er bara svo drullu ósátt við framkomuna og hrokann sem hrá ansi marga í læknastéttinni og þá sérstaklega á slysó og endurkomunni. Ég ætla ekki að sætta mig við það að það er gert lítið úr heilsu barnsins míns, við eigum bara einn líkama og hann þurfum við að lifa með og hugsa um ævilangt. Ég samþykki ekki sinnuleysi og hroka frá læknum. Enda er ég fjöryrki og mun halda áfram að berjast, við allt og alla
Vá hvað ég sakna hans, smá bilun, en svona er víst móðureðlið í okkur, tel klukkustundirnar þangað til þú kemur heim. Ein mynd af okkur saman, Stefán Óli og ég á Gamlárskvöld. Var að kíkja á Undirskriftarlistann Leiðréttum kjör öryrkja og aldraðra ,1251 undirskriftir, geðveikt
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
Ingunn Jóna Gísladóttir
Tenglar
Signý Björk
Vinkona
Færeyjar
Ýmislegt
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (13.6.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 38159
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar