14.1.2008 | 17:10
Íslenskt fjármálavit.
Hann er örvæntingafullur bíleigandinn sem auglýsti í Fréttablaðinu í gær. Hann skuldar allt verðmæti bílsins, og gott betur. Til að losna við ökutækið býður hann kostaboð.
Bíllinn er til sölu á hundrað prósent láni og að auki fylgir ókeypis gasgrill með sem er metið á 130 þúsund krónur. Gallinn er samt sá að grillið er enn í kassanum og því á eftir að setja það saman. Ef einhver hefur áhuga er rétt að taka fram að bíllinn er 2000 árgerðin af Suzuki Baleno, metinn á 560 þúsund.
Las þetta á DV.is, er þetta ekki týpiskur Íslendingur með frábært fjármálavit
Um bloggið
Ingunn Jóna Gísladóttir
Tenglar
Signý Björk
Vinkona
Færeyjar
Ýmislegt
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Typiskur íslenskur hálfviti, stundum er mikið til í setningunni "fólk er fífl". Nú fer ég til Gauta á morgun, mikil spenna í gangi hjá mér, var að tala við dóttir mína, aðgerðin hennar gekk vel og hún komin heim. Ætla að vera hjá henni á morgun. Kveðja
Ásdís Sigurðardóttir, 14.1.2008 kl. 20:16
hver bíður hæst....ekki ég
Ólafur fannberg, 14.1.2008 kl. 20:32
Já eimitt asskoti fínt blogg hjá þér, bara að bjóða"bjarnargreiða"gasgrill-ósamsett þó það skipti ekki máli. Allt gert til þess að geta haldið áfram á þessu líka kolbrjálaða(neyslufylleríi) Skítt með það þó aðrir sitji í súpunni eftir að einhver lætur"glepjast"og kaupir útekna DRUSLU. Þó bíltegundin sé út af fyrir sig góð.
Eiríkur Harðarson, 14.1.2008 kl. 20:46
Verð að skella mér á þetta fyrst að það fylgir gasgrill he he he he
Linda litla, 14.1.2008 kl. 23:53
jább... þetta er íslenskt.
Gísli Sigurður, 15.1.2008 kl. 00:38
Já ég las líka um þetta.Veit varla hvort þeta segir meira um viðkomandi eða ástandið í þjóðfélaginu.........hver lítur við 8.ára gömlun bíl í dag......reyndar væri ég að yngja upp um helming ef ég skellti mér á bíl og grill
En ég get nú bara ekki annað en brosað út í annað.....betra en að ég fari að argast út í neyslubrjálæðið.........er hætt.......
Solla Guðjóns, 15.1.2008 kl. 02:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.