Reiði og hlátur

OMG hvað ég hefði þurft að komast í bíltúr með lögunni í Heiðmörkina í dag. Devil%#%&##Arrrrg. Lögfræðingurinn minn sem sér um málsóknina mína gegn byggingarfyrirtækinu sem byggði þessa gölluðu íbúð, hringdi í mig í dag á meðan ég var í Bónus, ekki besti staðsetningin. En alla vega hann hringdi og tilkynnti mér það að  helv.... aðalmeðferðin hjá mér sem átti að vera á þriðjudaginn, verði frestað. Það eru víst komnir upp einhverjir hagsmuna árekstrar á milli fyrri eiganda og núverandi eiganda á byggingarfyrirtækinu og fjandans lögfræðingsins þeirra. Þannig að nú ætla þeir að biðja um frest til að geta sett annan lögfæðing í málið. Ég var alveg brjáluð og spurði hvort að þetta væri ekki bara enn eitt stöntið hjá þeim til að tefja þetta hel.... , þetta er bara búið vera í gangi í 7 ár. Þannig að við þurfum víst að bíða lengur eftir að þessu lýkur og sætta okkur við það að sitja hér í roki og rigningu þegar við erum nálægt gluggum eða hurðum, og áframhaldandi handklæða þvott, þar sem þau hafa verið mikið notuð nú undanfarið í þessu veðri sem hefur verið. Kannski ég fái dæmdar bætur fyrir slit og mikla þvotta á öllum handklæðunum sem ég hef þurft að teppaleggja og þétta meðWink?????? Jæja, það kemur í ljós á þriðjudaginn hvað þeir fá langan frest.

Í kvöld fórum við í Íslensku Óperun að sjá Pabbann með honum Bjarna Hauki, unglingurinn fór með. Hann Bjarni er bara snillingur á sviðinu, ég hló svo mikið að ég var komin með vöðvabólgu og verki í hnakkann og kjálkann og náttúrlega með verki alls staðar eftir að sitja svona, en það var vel þess virði. Ég sá Hellisbúan með honum og varð bara að komast á þetta leikrit með honum líka, er reyndar að hugsa um að fjárfesta í Hellisbúanum á DVD, til að leifa börnunum að sjá það frábæra leikrit. Þetta er bara húmor sem hentar mér. Frumburðurinn minn hló svo mikið að ég hélt að hann mundi kafna. Honum var virkilega skemmt þegar Bjarni var að lýsa fæðingunni, svefnlausum nóttum, ælu, kúkableyjum og öllu því tilheyrandi. En ég mæli alveg hiklaust með þessu leikriti, maður fær alveg fullt af endorfíni á að sjá leikritið.

En nú enn og aftur, munið að láta alla vita af undirskriftarlistanum, Leiðréttum kjör öryrkja ogaldraðra, komnar 3029 undirskriftir, en það er bara 1% af þjóðinni, þannig að endilega látið alla vita og hjálpið þeim sem geta ekki skráð sig sjálfir. Við sem stöndum í þessari baráttu erum að gera þetta fyrir okkur öll, því það kemur að því að þið verðið í okkar sporum, að þurfa að fara á lífeyri og þá er betra fyrir ykkur að við erum búin að fá þessu breytt og leiðrétt. Þetta eru bara hrein og klár mannréttindi sem við erum að berjast fyrir. 

 Baráttu Fjöryrkjakveðjur


Dýru kremin

Ég hef nú verið að horfa á bresku þættina á skjá 1 How to look good naked. Mér finnst þessir þættir alveg ofboðslega skemmtilegir, stíllistinn gerbreytir konum, bara með sma snyrtingu og með því að breyta um fataval hjá þeim, ekki eins og Americu þar sem hnífarnir eru óspart notaðir. Í tveimur síðustu þáttunum  hafa verið gerðar prófanir á kremum, í gær voru það brjóstakremi eða krem til að lifta og stinna brjóstin og í seinust viku voru það krem til að vinna cellulite/ appelsínuhúð. 100 konum var skipt í 4 hópa og voru látnar prófa þessi krem í 4 vikur, þær vissu ekki hvaða krem þær fengu, dýru eða ódýru kremin. Og viti menn það voru ódýru kremin sem höfðu vinninginn, dýru kremin fengu virkilega lélega dóma frá þessum bresku konum.

Kremið fyrir appelsínuhúðina sem kom best út var frá NiveaGrin en ég man ekki hver var framleiðandinn sem kom best út í gær, en það var eitt af ódýru kremunum.

Ég fæ útbrot og ofnæmisviðbrögð í andlit af þessum dýru flottu kremum, t.d Lancome sem á að vera ofsalega gott, ef ég set það framan í mig þá hreinlega kviknar í andlitinu á mér, þannig að ég nota bara Nivea. 


mbl.is Íslenskar konur nota 45 þúsund króna andlitskrem
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góður endir á erfiðum degi

Eftir hádegi hringdi skólahjúkrunarfræðingurinn í mig og sagði mér að Stefáni hefði verið hrint og væri með mikla verki í baki og mjöðm. Við hentumst að stað og í skólann að sækja hann, hann situr hágrátandi inn hjá hjúkrunarfræðingum, og ég þurfti enn og aftur að útskýra það að hann hafði lent í slysi og væri ekki í topp formi, það er eins og það eru ekki allir að fá upplýsingarnar í skólanum. arrrrg . Hjúkkan sagðist ætla að skoða málið og hringja í mig á morgunn. En jæja við mæðginin áttum tíma í hnykk, sem hefur hjálpað okkur báðum mjög mikið.

Á meðan við bíðum hjá hnykkjaranum hringir hjúkkan í mig, var búin að tala við alla kennarana, skoða og bera saman námsárangur frá því vor og svo núna í haust, og eins og hún og kennararnir sáu er honum að hraka í náminuCrying Hjúkkan ákvað að ræða þessi mál og hafa samband við sálfræðing sem hún vill að hann fari til. Hún var svo hneyksluð á því að læknarnir á slysó sáu enga ástæðu til að fylgjast með honum. Þannig að hún setur af stað teymi til að vinna með honum í skólanum og hún vill að drengurinn fái áfallahjálp, telur það vera alveg lífsnauðsyn fyrir hann, eins og hún segir að þá verður að huga að líkama og sál við svona slæmt slys og áfall. Jibbbbíiiiii

Svo seinna var handboltaæfing hjá honum, alveg sama hvað, hann vill ekki missa af æfingu, æeg sit alltaf og horfi á og tek hann á bekkinn, þegar ég sé að hann byrjar að fá verki og haltra. Því hann getur ekki stoppað sjálfur, vill ekki hætta út af verkjum, en líkamin er að senda skilaboð.

Við fengum tölvupóst í gær þar sem börnum sem æfir handbolta var boðið á æfingu hjá landsliðinu, ég var svo utan við mig í gær að ég tók ekki eftir því að það átti að skrá sig í gær, og Stefáni langaði svo að faraWoundering Þá ákvað ég að ég ætlaði að gera allt til að hann kæmist, sérstaklega eftir erfiðan skóladag, þá var bara að taka upp símann og hringja, fyrst í formanninn í okkar félagi og svo bara beint í gemsan hjá Róbert hjá HSÍ og þessu var bara reddað. Þvílíkt bros sem ég fékk hjá guttanum þegar hann vissi að við kæmust á landsliðsæfinguna. Á æfingunni fengu  öll börn plakat af liðinu og boðsmiða á leikinn á föstudag. Við verðum þá í Laugardalshöllinni að hvetja STRÁKANA OKKAR.

512_IMG_5920 Stefán og Sigfús, smá stærðarmunurGrin

512_IMG_5923 Stefán stoltur með Snorra Steini.

Alla vega góður endir á erfiðum degi, að fá að hitta hetjurnar. 

Jæja 2.718 undirskriftir Wizarden minni samt enn og aftur á UNDIRSKRIFTARLISTANN 

Baráttukveðjur til allra fjöryrkja 


Baráttan heldur áfram

Nú er allt að fara á fullt, maður er í baráttu alls staðar, ég stökk út í djúpulaugin með fjöryrkjahópnum, og þvílíkt fólk og baráttugleði. Samstaðan er á við vítamínsprautu í afturendan. 2352 undirskriftir komnar og við erum alls ekki hætt.

Eins og ég bloggaði um í gær er nú sonur minn loksins komin til lækna sem sjá ástæðu til að rannsaka og mynda hann betur. Svona heilbrigð skynsemi segir mér að 27 kg líkami getur ekki komið heill út úr því að fá eitt tonn af járnhrúgu á sig á 30-40 km hraða. En enn og aftur vill ég segja það að nota hjálma þegar þau eru að hjóla. Ef hann hefði ekki verið með sinn hjálm, þá væri hann ekki hér. Sá alveg eins hjálm og hann var með í Toys R us, sama merki og sama þyngd á hjálminum, og hann kostaði heilar 1.199 kr. Þannig að ég mæli með að foreldrar kíki þangað og kaupi hjálma á börnin, þó þeir eru ódýrir þá standa þeir svo sannarlega fyrir sínu.

Eftir 6 daga eða þriðjudaginn í næstu viku kl.9:15 á ég svo að mæta í Héraðsdóm Reykjavíkur, þá byrjar aðalmeðferðin í máli hjá mér gegn byggingaraðilanum sem byggði íbúðina okkar.  Þetta er búið að vera hræðilega langt og dýrt ferli, en ég er þrjóskuhundur sem gefst ekki upp, er búin að standa í þessu í 7 ár. Byggingaraðilanum og lögfræðingnum þeirra finnst ég vera að kvarta að ástæðulausu, íbúðin heldur hvorki vatni né vindi, sem ég tel vera stórana galla, en ekki þeimAngry en það er út af því að þeir þurfa ekki að búa í þessu, það er ég.  Rakaskemmdir í útveggjum, þeirra lausn á því er að kynda vel og lofta út, get ekki loftað mikið betur út en ég geri, gluggarnir eru svo óþéttir að þetta er allt sjálfvirktWink Og það versta er að allir hlaðnir veggir eru að losna frá lofti og farnir að hallast til. Svo voru settar 3 mismunandi stærðir af hurðum, þeim hefur líklega þótt það svo cool, en þar af leiðandi er íbúðin ekki hæf fyrir fatlaða eins og hún átti að vera. En Guð hvað ég vona að þessu máli lýkur fljótlega, þannig að það verði loksins hægt að mála og laga hurðar og glugga, því veðráttan sem er núna á þessum tíma er alveg óþolandi, á meðan íbúðin er svona og þetta bætir ekki heilsuna.


Brjálað að gera.

Var búin að bíða lengi eftir þessum degi, í dag átti yngri sonur minn sem lenti fyrir bíl tíma hjá heila og taugasérfræðingi, ég hef haft miklar áhyggjur af honum vegna minnisleysis, svo er hann ferlega uppstökkur og bara breytturFrown. Læknum á Borgarspítalanum sáu enga ástæðu til að vera að skoða eða athuga hans heilsu neitt meir, við vorum svo greinilega að trufla læknana þar upp frá. 

En þessi sérfræðingur gerði helling af taugaprófum, og ákvað að senda drenginn í segulómun af höfði, mikið ofboðslega létti mér við það, mér fannst ég ekki vera að trufla hann og hann hafði áhuga og áhyggjur af þeim persónuleika breytingum  sem drengurinn hefur orðið fyrir. Svo á hann að fara til taugasálfræðings sem mun skoða hann og vinna með hann.

Jæja eftir hádegið var svo komið að foreldraviðtölum í skólanum, unglingurinn minn er bara að standa sig svo geðveikt vel, svo kurteis og með frábærar einkunnir, að ég sá vængina vaxa út úr herðablöðunum á honum og það kom skær geislabaugur fyrir ofan höfuðið á honumHalo, hann er algerlega punktalaus, sá eini í bekknum, OMG hvað ég er stolt af honum, ekki lengur skilningslausir kennarar sem kalla hann latanAngry, heldur skilja þeir að hann er með athylisbrest, en lyfin hjálpa alveg geðveikt mikið.

Yngri sonurinn ofboðslega duglegur og kurteis, gengur vel en er að dragast aftur úr, hefur versnað þó nokkuð í lestri og öðrum fögum, þannig að afleiðingar slyssins virðist hafa skert  námsgetuna að einhverju leiti, en það er vonandi að þetta er tímabundið.

Svo var farið á handboltaæfingu, og eftir það beint út í skólann aftur á bekkjarkvöld, sem ég átti að hafa umsjón með. Úffff 50, 9 og 10 ára hress börn með raddböndin í lagiWhistling En börnin voru ánægð með bekkjarskemmtunina, að fá að sleppa sér í leikfimissalnum í tvo klukkutíma og engir kennara að skammast í þeim og segja þeim að vera stillt og hafa ekki læti, þau voru vel þreytt og sveitt þegar þau fóru heim. Við foreldrarnir sem sáum um þetta, með smá hausverk, en hann lagast, alla vega hjá þeim hinum, þau losna við sína verkiPinch.

En eins og ég sagði í gær þá fannst mér ekki ólíklegt að undirskriftarlistinn færi á flug í dag og þegar ég loksins settist niður fyrir framan tölvuna og kíkti, þá varð maður bara klökkur 2129 búnir að skrifa, og það tikkar hratt. Frábært, æði ég gæti öskrað að gleði, ætti kannski að hringja í lögguna og fá þá að skutla mér út í Heiðmörk og öskra þarLoL 

En þið sem eruð ekki búin að skrifa á undirskriftarlistann, endilega kíkið á hann og skutlið nafni ykkar á hann hér

Fjöryrkja baráttukveðjur. 


Fjöryrkjaviðtal í 24 stundir á morgunn

Á morgunn verður viðtal við YFIRFJÖRYRKJANA Heiðu Björk og Ásdísi, vegna undirskriftarlistana. Viðtalið tók hún Björg Eva sem skrifaði um ASI og Gylfa í seinustu viku, með fyrirsögninni "Öryrkjar eru sjálfum sér verstir. Sú fyrirsögn verður afsönnuð í viðtalinu á morgunn, reikna ég meðGrin

Ég bíð spennt eftir að lesa blaðið og vonandi að það verða þá einhver meiri viðbrögð og áhugi frá alþingismönnum og ráðherrum.

Undirskriftunum rignir inn og eru orðnar 1657, þannig að ég vonast eftir undirskriftaflóði, þegar fólk hefur lesið blaðiðLoL

Svo eru fjöryrkjar farnir að kíkja í kaffi og hittast, alveg frábærir bloggvinirHeart

PS, ekki gleyma undirskriftarlistanum


Óhuggulegt

Hvað er í gangi hjá bretum sem fara í frí til sólarlanda með börnin sín. Er eitthvað að mér, en mér finnst þetta hálf furðulegt að móðirin hverfur.

Ég er nú bara það taugaveikluð þegar kemur að börnunum mínum og við förum erlendis, þá er ég bara með augu í hnakkanum. Maður veit aldrei hvað getur gerst, þannig að ég hleypi þeim aldrei úr augsýn einum. 


mbl.is Leita móður fimm ára breskrar stúlku sem féll af hótelsvölum á Mallorca
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skýjamynd

512_PICT10168

Skýin geta verið furðuleg, út úr þessu skýi sá ég kisu með vængiErrm

Hvað finnst ykkur? 


Vááá þvílík samstaða.

Fjöryrkjarnir eru að afsanna þá sögu að Palli var einn í heiminum( þannig líður manni oft), 1557 undirskriftir.

Tölvan, netið, bloggið og tölvupósturinn eru greinilega hin bestu vopn fyrir svona baráttu, fréttamenn og fleirri búnir að vera í sambandi, og boltinn stækkar og stækkar. Þetta er frábær samstaða, hjartans þakkir til allra sem hafa skrifað á undirskriftarlistann og endilega haldið áfram að senda mail til allra sem þið þekkið og hafa áhuga á að styðja okkur í þessari baráttu. Við Fjöryrkjar erum komin til að vera og höldum áfram að berjast.


Myndir af Náttúrunni

IMG_5826

Fann loksins ramma fyrir myndir sem ég tók og breytti litum í.  Þetta er mynd sem ég tók í sumarbústað í Úthlíð í sumar. 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ingunn Jóna Gísladóttir

Höfundur

Ingunn Jóna Gísladóttir
Ingunn Jóna Gísladóttir
Móðir, áhugaljósmyndar og tekjuhár öryrki. Og Fjöryrki  ingunnjg@internet.is
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 512_IMG_8569
  • 512_IMG_8534
  • 512_IMG_8509
  • 512_IMG_8485
  • 512_IMG_8609

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (11.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband