5.11.2007 | 15:31
Fórnalambið fær minnst
Hver er það sem er fórnalambið hér. Málskostnaðurinn er 234.000 krónur, sem lögfæðingarnir fá. Ríkissjóður fær 180.000 krónur. Ég bara spyr fyrir er ríkissjóður að fá greitt? Og að lokum fær fórnalambið 100.000 krónur fyrir líkamsárásina
Sem sagt ríkissjóður fær greiðslur þegar einhver er laminn og dómur fellur í því. Af hverju fær ríkissjóður meira en fórnalambið? Svo fá náttúrulega lögfræðingarnir mest. Hvað er að í dómskerfinu í þessu landi.
![]() |
Reiddist vegna ælugjalds" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
3.11.2007 | 12:44
ER TRYGGINGARSTOFNUN AÐ FREMJA MANNRÉTTINDARBROT???
Nú er mikið búið að vera að blogga um skerðingar hjá Tryggingastofnun undanfarna daga. Mér datt í hug að kíkja á síðuna hjá Mannrétindarskrifstofu Íslands og skoða þau lög sem þar eru skrifuð, þar sem að okkur lífeyrisþegum finnst verið sé að brjóta á okkar mannréttindum, með öllum þessum skerðingum og tekjutengingum og viðmið við laun maka og fleirra.
Á síðunni www.mannrettindi.is fann ég þessa síðu og þegar ég var búin að lesa nokkrum sinnum yfir hana, þá finnst mér ýmislegt benda til þess að svo sé. Ég er ekki með neina lögfræðimenntun en minn skilningur á þessari klausu sem ég setti inn hér fyrir neðan, er sú að það er bannað að mismuna einstaklingum vegna, kynþáttar, litarhafts, kynferðis, trúar, heilsufars, aldri, fötlun, stjórnmálaskoðunnar, þjóðaruppruna eða félagslegrar stöðu.
Er TR ekki að mismuna einstaklingum vegna félagslegrar stöðu, þ.e.a.s ef lífeyrisþeginn er giftur eða í sambúð þá skerðast bætur hans?
Þá er spurningin er TR að fremja mannréttindarbrot á lífeyrisþegum?
Bann við mismunun
Réttur til jafnræðis og bann við mismunun er eitt af grundvallarhugtökum í alþjóðlegum mannréttindalögum.
Hægt er að skilgreina mismunun sem hverskonar aðgreiningu, útilokun eða forgangsrétts sem byggður er t.d. á kynþætti, litarhafti, kynferði, trú, heilsufari, aldri, fötlun, stjórnmálaskoðunum, þjóðaruppruna eða félagslegri stöðu.
Rétturinn til jafnrar meðferðar krefst þess að allir einstaklingar, án tillits til ofangreindra þátta, séu jafnir fyrir lögum, án alls misréttis. Bann við mismunun á á tryggja að ólíkir einstaklingar í sömu aðstæðum standi jafnir frammi fyrir lögum og komið sé fram við þá á sama hátt, án tillits til sérkenna.
Rétt er þó að taka það fram að ólík framkoma við einstaklinga og ólík meðferð flokkast ekki alltaf sem mismunun.
Inntak hugtaksins mismunun felst í eftirfarandi viðmiðum;
1.
kannað er hvort að mismunandi meðferð er beitt á sambærileg tilvik og þegar sambærileg meðferð er beitt á mjög ólík tilvik.
2.
Metið er hvort að meðferð tilvikanna verði réttlætt með hlutlægum og málefnalegum ástæðum. Við mat á því hvort að hlutlægar og málefnalegar ástæður eru að baki er litið til þess hvort sú meðferð sem kvartað er undan stefni að lögmætu markmiði og hvort gætt sé meðalhófs þannig að ekki sé gengið lengra en þörf krefur í því skyni að ná því markmiði sem stefnt er að.
3. við mat á því hvort að hlutlægar og málefnalegar ástæður eru fyrir hendi njóta ríki ákveðins svigrúms til mats sem er breytilegt eftir aðstæðum máls.
Hafa atriði þessi sérstaklega verið sett fram af alþjóðlegum mannréttinda eftirlitsstofnunum. Má þar nefna
Mannréttindadómstól Evrópu, Mannréttindadómstól Ameríku, og Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna.
Bann við mismunum og rétturinn til jafnréttis krefst þess oft að ríki þurfi að beita sértækum aðgerðum til að uppræta hverskonar aðstæður sem að leitt geta til misréttis.
Bann við mismunun og íslenskur réttur
Þegar mannréttindaákvæði stjórnarskráinnar voru endurskoðuð árið 1995, var lögfest í stjórnarskránni almenn jafnréttisregla ásamt sérreglu um jafnrétti á grundvelli kynferðis. Hljómar 65. grein stjórnarskráinnar á eftirfarandi hátt;
Allir skuli vera jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda án tillits til kynferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kynþáttar, litarháttar, efnahags, ætternis og stöðu að öðru leiti. Konur og karlar skulu njóta jafns réttar í hvívetna.
Í almennum lögum má víða finna ákvæði sem að stefna að því að vernda jafnrétti. Helst eru það jafnréttislögin nr. 96/2000 og jafnræðisreglu stjórnsýsluréttar, sbr. 11.gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Jafnframt má víða finna einstök lagaákvæði sem leggja bann við mismunun eða leitast við að tryggja ákveðin réttindi.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
2.11.2007 | 15:36
Smá viðbót við umræður um Tryggingarstofnun
Aðeins meiri upplýsingar varðandi vinnubrögð og reglur hjá Trygingarstofnun Ríkisins.
Fyrir 13 árum síðan veiktis tengdapabbi minn sálugi, hann greindist með krabbamein, var greinilega búin að vera veikur lengi, því hann var komin með krabbamein á lokastigi.
Hann fer náttúrelga á örorkulífeyri eins og gengur og gerist hjá fólki sem veikist eða slasast.
Tryggingarstofnun greiðir bætur fyrirfram, þ.e.a.s þann 1.nóvember er verið að greiða bætur fyrir nóvembermánuð, þetta var líka svona fyrir 13 árum síðan. Tengdapabbi lést þann 24.ágúst ´94 þá var hann náttúrulega búin að fá greiddar bætur fyrir ágústmánuð. Og eins skemmtilegar og allar fáránlegu reglurnar eru hjá TR, þá kemur bréf frá TR í september um það að þar sem maðurinn hafði látist þann 24.ágúst, þá var hann náttúrulega búin að fá of háar bætur fyrir þann mánuð. Og viti menn TR bakfærir upphæðina af reikningum hjá látnum manni.
Þannig að kæru lífeyrisþegar, reynið nú að plana andlát ykkar þannig að þið deyið ekki skuldug við þá frábæru stofnun sem TR er .
Minni á Undirskriftarlistann.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
2.11.2007 | 13:06
Greiðsluseðillinn frá Lífeyrissjóðinum
Jæja, þá var pósturinn að koma. Greiðsluseðillinn frá lífeyrissjóðinum Gildi var eitt af því sem kom inn um lúguna.
Ég vissi ekki alveg hvort ég ætti að hlægja eða gráta......... þegar ég las yfir seðilinn Neðst á seðlinum er verið að minna mig á að lífeyrissjóðurinn er að skerða mín lífeyrisréttindi, samkvæmt samþykkt sjóðsins frá árinu 1.júní 2005
VINSAMLEGAST ATHUGIÐ AÐ SÍÐASTA ÓBREYTTA GREIÐSLA Á ÖRORKULÍFEYRI VERÐUR FYRIR OKTÓBERMÁNUÐ.
Þeir eru svo almennilegir að senda mér svona smá lokaviðvörun um að bæturnar hjá mér muni lækka um tæpar 25.000 kr þann 1.desember. Þetta er jólaandinn á Íslandi í dag.
Tryggingarstofnunn sendir bréf um að ég stend í skuld við þá....................
Og lífeyrissjóðurinn Gildi er að lækka greiðslurnar hjá mér..........................
Hlakkar ekki öllum til að verða lífeyrisþegar???
Verða jólin ekki æðisleg
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
2.11.2007 | 12:34
Tannlæknar, mafíósar??????
Þetta er algjört hneyksli að formaður tannlæknafélagsins skuli koma með þessi viðbrögð. Ætli þessi viðbrögð séu gerð í þeim tilgangi að fela skammarlega háar álagningar sem sumir tannlæknar eru með.
Reikningar, verð og álag sem sumir tannlæknar eru með þola bara alls ekki dagsbirtu. Ég var hjá tannlækni sem er með stofu á Grensásveginum, sá tannsi tók við stofunni af öðrum sem hætti vegna aldurs. Gamli tannsinn miðaði sitt verð við verðskrá TR og var oft að tuða um það hvað hún væri nú há. Svo komu nýir eigendur og ég hafði varla efni á því að fara til tannlæknis lengur, á 3 börn og fór með eitt þeirra til tannsa og þegar ég fékk reikninginn lá við yfirliði. Ég fer á síðunna hjá TR og tók þá eftir því að nýi eigandinn var búin að leggja að meðaltali 200-300% og jafnvel meiraa ofan á viðmiðunarverð frá TR.
Ég varð fyrir því í eitt skipti eftir að hafa setið í stólnum og borgað svimandi háan reikning að fá svo heiftarlega sýkingu í tönnina og kjálkan að ég var lögð inn á spítala í heila viku. Þá varð ég svo heiftarlega reið að ég skrifaði eigandanum bréf upp á 3 blaðsíður, varðandi þjónustuna og verðið hjá þeim og bölvuðu tönnina. Eftir þetta fann ég nýjan tannlækni sem er alveg yndislegur og með viðráðanlegt verð, borga minna fyrir skoðun á öllum þremur börnunum hjá honum, en það kostaði fyrir eitt barn hjá hinum.
Kannski að Sigurjón Benediktsson er með verðlista sem hann vill ekki að fólk fái upplýsingar um, því hann gæti hugsanlega misst einhverja kúnna við það.
Ætli við Öryrkjar og ellilífeyrisþegar kæmust upp með það að senda bara part af skattaskýrslunni til TR, þannig að við lendum ekki alltaf í skerðingum og erum jafnvel stórskuldug við stofnunina??????????
Minni á Undirskriftarlistann LEIÐR'ETTUM KJÖR ÖRYRKJA OG ALDRAÐRA
![]() |
Biður tannlækna að gefa ekki upp fullt verð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.11.2007 | 11:17
Þetta er hið íslenska almannatryggingarkerfi.
Þetta er alveg ótrúlegt að lesa um þetta, en við sem erum öryrkjar erum vön að heyra svona sögur. Það erum við sem þurfum að lifa með og eiga við þetta bölvaða kerfi. En það er almenningurinn í landinu sem er enn á vinnumarkaði og fær sín laun, sem þarf að fá fréttir af þessu til að það vakni og geri sér grein fyrir því lífi sem lífeyrisþegar lifa. Í þessari sögu hjá Guðmundi kemur fram að skatturinn tók staðgreiðslu, vaxta og barnabætur hurfu, hann stendur uppi skuldugur við TR og það sem mér finnst glæpsamlegt í þessu öllu er að tryggingarfélagið dró bæturnar sem Guðmundur fékk frá TR frá þeim bótum sem félagið átti að greiða honum vegna tekjutaps.
Björg Eva fréttakona á blaðinu 24stundir er búin að vera hörkudugleg að vekja athygli á málefnum okkar, og á hún þakkir skilið fyrir það.
Lög og reglur sem TR vinnur eftir voru settar og samdar á alþingi og því verður að breyta, og það mun bara gerast ef allir standa saman og berjast gegn þessu óréttlæti.
Hjálpið okkur að berjast gegn þessu fáranlega kerfi og skrifið ykkur á undirskriftarlistann LEIÐRÉTTUM KJÖR ÖRYRKJA OG ALDRAÐRA.
Ætli hann Guðlaugur Þór heilbrigðisráðherra hafi þurft að lifa á slysadagpeningum frá TR upp á 1.117 kr á dag í fyrra þegar að hann varð fyrir því slysi í desember að brennast???????
![]() |
Stórtapaði á að þiggja bætur eftir slys |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.11.2007 | 11:55
Í hvað á Framkvæmdarsjóður aldraðra að fara???????
Var að lesa í blaðinu 24stundir að ríkisstjórnin leggur til að gjald í framkvæmdasjóð aldraðra verði hækkað um 789 krónur. Það þýðir að árstekjur sjóðsins hækki um 211,3 milljónir.
Nú á sjóðurinn tæplega 1 milljarð og 28 milljónir samvæmt Svanhvíti Jakobsdóttur skrifstofustjóra í heilbrigðisráðuneytinu. Á næsta ári verður hætt að nota fé úr sjóðnum í rekstur stofnanaþjónustu.
Mig langar að vita fyrir hvað á þessi sjóður að vera, í hvað eiga þessir peningar að fara???? Sjóðurinn veitir styrki, meðal annars fékk heilbrigðisráðuneytið hálfa milljón vegna kynningarbæklings og utanríkisráðuneytið fékk sömu upphæð vegna alþjóðaþings um málefni aldraðra. Eru þessi tvö ráðuneyti í svo miklu fjársvelti að þau þurfi að fá styrki frá öldruðum ???????
Framkvæmdasjóður aldraðra veitti Hauki Guðlaugssyni og Gunnari Kvaran um 2 milljónir til tónleikahalds á öldrunarstofnunum. Söngskólinn og Óperukórinn fengu styrki og sjóðurinn greiddi lektorstöðu í Háskóla Íslands.
Fyrir hvað er framkvæmdarsjóður aldraðra?? Hverjir ákveða það að þessum peningum eigi að verja í tónleika, borga fyrir lektorstöður og styrkja þessi tvö ráðuneyti????
Er virkilega ekki hægt að nota þessa peninga fyrir gamla fólkið, er svo mikið gert fyrir aldraða að þeim munar ekkert um að styrkja ráðuneyti og söngvara. Gamla fólkið er náttúrulega svo nægjusamt að það geti og eigi að sætta sig við súpu í kvöldmatinn og tekex.
Ætli gamla fólkið væri ekki frekar til í að fá betri mat og ummönnun frá fólki sem það skilur heldur en einhverja tónleika??????
Getur einhver sagt mér í hvað þessi peningar eiga að fara, því ég er ekki alveg að skilja það fyrir hvað við erum að borga. Mér finnst eins og þessir peningar eru ekki að fara mikið í nytsamlega hluti fyrir aldraða.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
29.10.2007 | 23:33
Viðeigandi Stjörnuspá
Stjörnuspá
Vatnsberi: Ertu enn að velta fyrir þér hvar þín sneið af hinni alkunnu köku sé? Þú þarft að baka kökuna sjálfur, gefa öðrum af henni og að lokum færðu þína sneið.
Varð að setja stjörnuspána fyrir daginn í dag á bloggið, finnst þetta vera alveg frábær stjörnuspá, sérstaklega þegar ég hugsa til baráttu Fjöryrkjahópsins. Þessi spá segir allt sem segja þarf varðandi baráttu öryrkja og aldraðra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
29.10.2007 | 22:17
Helvítis hroki lækna á Slysó
Ég mikið verið að pæla í læknum sem eru eins mismunandi og þeir eru margir, sumir þeirra eru alveg frábærir og svo eru aðrir þeirra sem ættu hreint og beint að starfa í verksmiðju.
Ég hef heyrt af ansi mörgum sem hafa þurft að leita til Slysavarðstofunnar í Fossvogi, þar virðist það vera ansi algengt að læknarnir þar þjáist af hroka og óliðlegheit af háu stigi. Eru læknarnir sem eru ráðnir á slysó ófærir að fá vinnu annarsstaðar, ég meina ég færi varla til nokkurs þeirra ef þeir væru með læknastofu út í bæ. Það liggur við að það er hægt að telja þá á fingri annarrar handar sem eru almennilegir og hlusta á þá sem leita á slysó.
Tilfinningin sem maður fær þegar maður leita þangað er sú að maður er að trufla þá lækna sem þar eru að vinna. Læknarnir þar hreyta einhverju í mann og fær maður spark í afturendan fyrir að voga sér að trufla þá með einhverju helvítis óþarfa kvörtutnum að þeirra mati, svo er manni sagt liggur við að hypja sig heim og hætta þessu kvarti og kveini. Fyrir einu ári síðan var ég svo vitlaus að eyða pening og tíma í að leita á slysó, var búin að vera með miklar kvalir í öxl í margar vikur, heimilislæknir kallaði þetta millirifjagigt, sem að mínu mati er sjúkdómsgreining hálfvitans sem ekkert veit, hann skrifaði upp á svefnlyf. Og viti menn, það lagaði ekki verkinn í öxlinni. Sem sagt eftir nokkrar svefnlitlar nætur gafst ég upp á þessum kvölum og fór á slysó, þar kemur ung kona læknakandídat, það fyrsta sem hún hreytir í mig var spurning hvort ég vissi ekki að þetta væri bráðamótaka og að hennar áliti væri öxlin á mér og kvalirnar ekki í þeim flokki að kallast neitt bráðatilfelli. Hún potar þó aðeins í öxlina, segir mér að fara heim og taka bólgueyðandi og verkjalyf, þetta væri líklegast ekkert annað en vöðvabólga. Ef verkurinn myndi ekki lagast þá ætti ég hugsanlega að láta taka mynd af öxlinni, henni datt sko ekki í hug að senda mig í myndatöku, þó að slík tæki eru á hæðinni fyrir ofan, því ég var greinilega búin að trufla hana nóg. Ég í hálfgerðu shjokki yfir framkomunni og hrokanum í bölvuðu nemadruslunni, drattaðist heim og hélt áfram að kveljast, var bara búin að vera með stig vaxandi verki í öxlinni í 3 mánuði, og samkvæmt öllu sem ég hef lært og lesið er að þegar þrálátir verkir eru í öxl þarf að mynda hana, en greinilega ekki á slysó. Stundum mætti halda að röntgen myndataka er dýrasta rannsókn sem framkvæmd er þar á bæ, ég held að það er eingöngu á tillidögum sem sjúklingar sem leita á slysó eru send í slíka myndatöku.
Ég ákvað eftir þetta að fara ekki aftur á slysó nema ég væri meðvitundarlaus. Hver kærir sig um að fara sárþjáður á slysó til þess eins að hlusta á einhvern hroka í læknunum þar. En alla vega ég fór til bæklunarsérfræðings í Orkuhúsinu, hann hlustaði á mínar kvartanir og sendi mig beint í röntgenmyndatöku og ómskoðun á öxlinni eftir að hann var búin að skoða mig vel og pota á alla réttu staðina
. Hann var alveg frábær og ekki til hroki í honum, hann reyndar skammaði mig fyrir að hafa ekki látið athuga öxluna fyrr, þannig að ég sagði honum bæði frá því sem heimilislæknirinn sagði og frá almennilegheitunum á slysó, mikið ofbðslega var hann hneykslaður á framkomunni þar. Tveim dögum seinna hringdi hann í mig og sagði ég væri með ofvöxt í beini í öxlinni sem var eins og krókur og það væri að rífa í vöðvafestuna, sinar og taugar. Hann sagði að ég yrði að fara í aðgerð sem fyrst, vildi að ég kæmi strax vikuna eftir, þar sem þetta var tveim vikum fyrir jól, þá spurði ég hvort það væri ekki í lagi að bíða fram yfir áramót, langaði mikið að geta séð um jólasteikina. Og var hvort sem var búin að vera svona í nokkra mánuði, þannig að við komumst að samkomulagi að ég tæki því rólega
og færi svo í aðgerðina strax í byrjun janúar. Þessi sérfræðingur er alveg frábær, hann hlustar og svo segir hann hlutina eins og þeir eru og er ekkert að bulla í manni. Enda er ég í aðgerðar áskrift hjá honum
Þegar maður er orðin svo gamall og ónýtur þá þarf að laga svo margt
Var ferlega snögg að jafna mig eftir aðgerðina á öxlinni, svo fór ég aftur í aðgerð hjá honum í vor að hæl og hásin, er eiginlega alveg búin að jafna mig eftir þá aðgerð, svo eru næstu aðgerðir í desember, hné og mjöðm. Þá verður önnur hliðin komin í lag áður en hægt er að byrja á hinni
En alla vega ef einhver þarf á góðum bæklunarlækni að halda þá mæli ég hiklaust með honum Gauta Laxdal.
Vill minna ykkur á baráttu fjöryrkja "Leiðréttum kjör öryrkja og aldraðra" munið UNDIRSKRIFTARLISTANN , fjöldi undirskrifta er komin í 3.559 en betra væri að fá mikið fleirri.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
27.10.2007 | 01:10
Lúxuslíf fjöryrkjans
Ásdís fjöryrki bað mig að senda sér nokkra punkta, varðandi lúxuslífið sem öryrki.
Ég settis í dag yfir bókhaldið, fann bara 3 bréf frá Tryggingarstofnun frá í ár, varðandi bætur sem mér hefur verið ofgreiddar, heildasumman á skuld minni við TR er 86.944 kr.
Svo eru það vaxtabæturnar. Um áramótin 2005-2006 hækkaði Fasteignamat Ríkisins mat á íbúðum, og þau áramótin varð ég sko alveg ferlega rík, allt í einu. Jú íbúðin mín hækkaði um rúmar 5 millur, váááá. Og þar sem ég varð skyndilega svo rík og mikil stóreignarmanneskja að þá fór ég úr því að fá fullar vaxtabætur sem í dag eru 218.042 kr á ári í það að fá 0 kr.
Svo er það lífeyrissjóðurinn Gildi sem hefur ákveðið að lækka lífeyrisgreiðslurnar hjá mér um 24.443 kr á mánuði eða um 293.316 kr á ári.
Þannig að samanlagt er ég að skulda og lækka í greiðslum sem nemur 598.302 kr á ári.
Enn það er allt í lagi, ég er nefnilega svo rík og með svo miklar mánaðartekjur, ég er öryrki og það er sko ekkert mál að lækka um þessa upphæð. Ég sleppi bara eitthvað af þessum óþarfa lúxus sem ég er endalaust að veita mér.
Viljið þið PLÍÍÍÍS muna eftir undirskriftarlistanum LEIÐRÉTTUM KJÖR ÖRYRKJA OG ALDRAÐRA. Undirskriftirnar eru orðnar 3272, en við viljum fleirri, látið það fréttast.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
Ingunn Jóna Gísladóttir
Tenglar
Signý Björk
Vinkona
Færeyjar
Ýmislegt
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar