1.12.2007 | 11:09
Minneapolis víííííííí
Jæja elsku bloggvinir, þá er stundin loks að renna upp sem ég er búin að bíða eftir í marga mánuði. Eftir nokkra klukkutíma flýg ég burt, ætlum að skreppa til Minneapolis og versla og slappa af. Þannig að ég tek mér smá blogg pásu, kem aftur hress og endurnærð með handleggi niður á hæla og sár á hnúum á miðvikudaginn. Mikið ofboðslega er erfitt að fara án barnanna, en það er víst nauðsynlegt að fá smá frí svona stundum. Hafið það gott öll sömul, ég mun sakna ykkar.
Um bloggið
Ingunn Jóna Gísladóttir
Tenglar
Signý Björk
Vinkona
Færeyjar
Ýmislegt
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Oooh Ingunn ertu að fara núna?! Góða ferð og knús og hafðu það alveg rosalega gott.
...ef ég væri að fljúga til Minneapolis myndi ég keyra yfir til Fargo og fara þar í stærstu og yndislegustu handavinnubúð sem ég hef nokkurn tíma komið í... mmmmmm læt mig dreyma smá..... ok búin.
Njóttu vel Ingunn mín, hlakka til að heyra frá þér þegar þú kemur aftur. Segi bara víííííííííi með þér!
Ragnhildur Jónsdóttir, 1.12.2007 kl. 11:18
Góða ferð Ingunn mín og njóttu þess að vera í fríi, svo ekki sé sagt njóttu þess að vera í fríi barnlaus. Það er ég að fara að gera í næstu viku. Þegar ég fer til Kúbu með vinkonu minni.
Það verður gaman að lesa ferðasöguna þína hérna þegar þú kemur heim aftur. Bæbæ og knús
Linda litla, 1.12.2007 kl. 12:53
góða ferð vestur
Ólafur fannberg, 2.12.2007 kl. 10:19
Góða ferð Ingunn mín og njóttu þín í strimla! Rosalega er ég ánægð með þér að vera að fara svona barnlaus út í heim, mmmmmm
Guðrún Arna Möller (IP-tala skráð) 2.12.2007 kl. 15:30
Góða ferð til Minneapolis og skemmtu þér vel
Katrín Ósk Adamsdóttir, 2.12.2007 kl. 18:50
Solla Guðjóns, 4.12.2007 kl. 12:09
OOOOhhhh, ég vildi að ég hefði verið að fara með þér. Ég hef aldrei komið til Ameríku, við hefðum getað tekið myndir saman og farið í bíó eða eitthvað skemmtilegt, svona til gamans. En í alvöru þá á ég eftir að komast lengra í vestur en bara 50 mílur vestur af Reykjanesi. Góða skemmtun,
Jón Svavarsson, 5.12.2007 kl. 00:50
Vona að þú skemmtir þér rosalega vel. Hlakka til að heyra frá þér. Kær kveðja
Ásdís Sigurðardóttir, 5.12.2007 kl. 12:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.