Góð jólagjöf fyrir lífeyrisþegana

Þetta eru vægast sagt frábærar fréttir.

Í dag er ekki nema ein vika síðan við  nokkrir fjöryrkjar, með yfirfjöryrkjan Ásdísi Sigurðardóttir í broddi fylkingar fórum á fund Jóhönnu Sigurðardóttur og afhentum henni undirskriftarlistann "Leiðréttum kjör öryrkja og aldraðra"

Ásdís Sigurðar las upp bréf sem hún skrifaði fyrir hönd okkar allra, Ásdís mikið ofboðslega hefur þú verið sannfærandi. Ekki grunaði mig að við fjöryrkjar fengjum svona skjót viðbrögð.

Þetta er ansi góð Jólagjöf fyrir lífeyrisþegana. Jóhanna Sigurðardóttir Félagsmálaráðherra, takk kærlega fyrir. Þvílík hörkukona hún Jóhanna og Ásdís þú er algjör hetjaInLoveKissing.


mbl.is Tekjur maka skerði ekki bætur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Takk elsku Ingunn, mér finnst nú lofið mikið, en ég segi samt takk. Ég er mjög stolt af Jóhönnu og ætla að senda henni þakkir frá okkur fjöryrkjum, hvernig var úti??? hlakka til að hitta þig fljótlega mín kæra.

Kveðj Ásdís

Ásdís Sigurðardóttir, 5.12.2007 kl. 20:19

2 Smámynd: Huld S. Ringsted

Já þetta eru frábærar fréttir!!

Huld S. Ringsted, 5.12.2007 kl. 20:59

3 identicon

Þetta eru vissulega frábærar fréttir, en gleymum okkur ekki, það mun ekkert gerast fyrr en í vor í fyrsta lagi.  Staðreyndin er ennþá sú að skerðingin er að fara illa með fólk akkúrat í dag.  En vonin sem er gefin heldur manni eitthvað á floti. 

Guðrún Arna Möller (IP-tala skráð) 5.12.2007 kl. 21:57

4 Smámynd: Ingunn Jóna Gísladóttir

Við höldum bara stórt FJÖRYRKJAPARTÝ, jú það var æðislegt úti og frábært að vera kominn heim aftur.

Ingunn Jóna Gísladóttir, 5.12.2007 kl. 23:27

5 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Alveg meiriháttar!!! Fáum okkur kaffi og konfekt hahaha

Ragnhildur Jónsdóttir, 6.12.2007 kl. 00:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ingunn Jóna Gísladóttir

Höfundur

Ingunn Jóna Gísladóttir
Ingunn Jóna Gísladóttir
Móðir, áhugaljósmyndar og tekjuhár öryrki. Og Fjöryrki  ingunnjg@internet.is
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 512_IMG_8569
  • 512_IMG_8534
  • 512_IMG_8509
  • 512_IMG_8485
  • 512_IMG_8609

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 37856

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband