21.12.2007 | 00:08
Komin heim
Ég kom heim í dag. Búin að sofa næstum allan daginn, það er bara svo gott að sofa í heima hjá sér og í eigin rúmi. Aðgerðirnar gengu vel, hnéið aðeins verra farið en myndirnar sýndu, doksi hreinsaði eitthvað af brjóskinu innan úr hnéskelinni og svo kom í ljós að liðþófinn var rifinn og tætur, þannig að hann þurfti að fjarlægja eitthvað af honum. Einnig þurfti að laga liðbandið í mjöðminni, sem var í því að smella og valda mér bölvuðum verkjum Liðbandið var svo ferlega strekt, þannig að doksi skar inn að liðbandinu og klauf það í spagettí strimla, þetta á að hjálpa liðbandinu að slakkna og lengjast.
Annars fór mikið af því sem hann sagði við mig í gær inn um annað eyra og út um hitt. Maður er pínu ruglaður eftir svæfinguna og hausinn ekki að virka vel þegar maður er á sterkum verkjalyfjum.
Nóttin var erfið, þó nokkrir verkir og alltaf erfitt að sofa vel í öðrum rúmum en manns eigins og með fullt herbergi af stynjandi sjúklingum í kringum sig. Mikið ofboðslega er gott að vera komin heim aftur.
Jæja, vildi bara láta vita að allt gekk vel, ég er á lífi og komin heim. Ætla að fara að koma mér í rúmið, er orðin virkilega sljó og þreytt.
Elsku bloggvinir takk kærlega fyrir allar hlýju kveðjurnar frá ykkur.
Um bloggið
Ingunn Jóna Gísladóttir
Tenglar
Signý Björk
Vinkona
Færeyjar
Ýmislegt
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 38058
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Mikið er ég glöð að heyra að þetta gekk svona vel. Ég býð spennt eftir því að komast í skoðun hjá honum. Fór út í búð í gærkvöldi og rölti aðeins um, hrundi þrisvar eins og auli og auðvitað alltaf einhver vitni að því. Hafðu það gott mín kæra og við tölumst. knús
Ásdís Sigurðardóttir, 21.12.2007 kl. 12:17
velkominn heim
Ólafur fannberg, 21.12.2007 kl. 13:41
Takk fyrir kveðjurnar, já það er æðislegt að vera komin heim
Ingunn Jóna Gísladóttir, 21.12.2007 kl. 14:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.