Allt gekk mjög vel.

Kom heim rétt eftir hádegið og ákvað að vera stillt og fór beint í rúmið og náði að sofa aðeins. Karlinn farin með börnin á handboltaæfingar, þannig að nú er smá ró og næði, bara ég og unglingurinn heima að spjalla og hlusta á tónlist.

Aðgerðin gekk bara mjög vel, hnéið hreinsað af bólgum og flygsum frá rifnu liðþófunum, þannig að nú á allt að vera komið í lag. Svo framalega sem ég fari rólega næstu daga og noti hækjurnar og sleppi öllum leikfimisæfingum og hoppiGrin

Mamma er búin að hringja tvisvar eftir hádegið til að athuga hvort ég er ekki örugglega að hvíla mig og taka því rólega. Reyndar er síminn búin að hringja ansi oft, fjölskyldan og vinir að athuga hvernig gekk, það versta er að maður á að reyna að hvíla sig eftir aðgerðina og sværfinguna, en það er bara frekar erfitt að hvíla sig og sofa þegar síminn hringir stöðugtShocking

 Jæja, held að ég fari að henda mér aðeins aftur upp í rúm, alla vega fram að kvöldmat. Vildi bara láta vita ykkur vita að allt gekk mjög vel.

Elsku bloggvinir, takk kærlega fyrir allar hlýju kveðjurnar frá ykkur, þið eruð öll æðisleg. Kíki á ykkur, þegar hausinn fer að virka betur.W00t


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur fannberg

DROPPAÐI INN TIL AÐ SEGJA HÆ.BIÐ AÐ HEILSA KARLINUM ÞEIM ÓVIRKA HEHE

Ólafur fannberg, 19.2.2008 kl. 17:20

2 Smámynd: Linda litla

Frábært að allt gekk vel, mér líst vel á að þú eyðir tíma í rúminu. Farðu vel með þig Ingunn mín.

Linda litla, 19.2.2008 kl. 21:12

3 identicon

Æ hvað ég er fegin að þetta gekk vel.  Ég held þú ættir að reyna að slökkva á símanum eða í það minnsta biðja hina í fjölskyldunni að svara og vera ekki að trufla þig.  Þú þarft hvíldina krúsin mín.  Svo er bara að muna að fara varlega.  Það er alveg ástæða fyrir því að læknarnir gefi þau ráð  ókei? Knús á þig

Guðrún Arna Möller (IP-tala skráð) 19.2.2008 kl. 21:21

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Mikið er nú gott að allt gekk vel. Þú átt að gera eins og ég með símann, stilli hann bara í gemsa bóndans og þá fæ ég frið.  Farðu varlega elskan mín og vonandi lukkast þetta núna.

Ásdís Sigurðardóttir, 19.2.2008 kl. 22:07

5 Smámynd: Katrín Ósk Adamsdóttir

Frábært hvað aðgerðin gekk vel Ingunn mín  Vertu nú dugleg að hvíla þig elskan knússsss

Katrín Ósk Adamsdóttir, 19.2.2008 kl. 22:28

6 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Alveg frábært að heyra að allt gekk vel. Nú er bara að sleppa öllum hoppum og svoleiðis  

Knús og bestu slökunarkveðjur til þín Ingunn mín

Ragnhildur Jónsdóttir, 19.2.2008 kl. 22:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ingunn Jóna Gísladóttir

Höfundur

Ingunn Jóna Gísladóttir
Ingunn Jóna Gísladóttir
Móðir, áhugaljósmyndar og tekjuhár öryrki. Og Fjöryrki  ingunnjg@internet.is
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 512_IMG_8569
  • 512_IMG_8534
  • 512_IMG_8509
  • 512_IMG_8485
  • 512_IMG_8609

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 37900

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband