22.3.2008 | 13:39
Föstudagurinn langi
Föstudagurinn langi búin og komin laugardagur. Dagurinn í gær var það langur að hann var vel nýttur, öllu stóðinu troðið inn í bíl ásamt myndavél og svo var brunað af stað austur á Þorlákshöfn. Þar var Zordís bloggari með stórglæsilega listasýningu og fjöldi bloggara á svæðinu. Mikið ofboðslega var gaman að sjá netvinina, þeir eru allir þrælhressir og ansi skemmtilegt að hitta loksins fólkið og spjalla við þá. Vorum aðeins sein í því og misstum af nokkrum bloggvinum sem hefði verið gaman að hitta. Eftir sýninguna keyrðum við meðfram sjónum og hleyptum stóðinu út að leika sér, ekki voru grislingarnir lengi að hlaupa niður í fjöruna og bleyta sig, en þau voru sæl og kát með að hlaupa undan öldunum og fíflast aðeins úti. Svo var kíkt í kaffi til Ásdísar bloggvinkonu og húsbandsins hennar á Selfossi, börnin kolféllu fyrir Bóthildi, það er kötturinn þeirra.
Grislingarnir komnir í bílinn og stefnan tekin á Þorlákshöfn
Ég að spjalla við Zordísi, sem er æðisleg listakona.
Ég og Solla að spjalla, það tók smá tíma að kveðja bloggvinina
Börnin þurftu aðeins að fá að hlaupa og leika sér og bleyta.
Heima hjá Ásdísi og húsbandinu hennar, allir að horfa á Bóthildi.
Ásdís að hjálpa Anítu að halda á Bóthildi.
Um bloggið
Ingunn Jóna Gísladóttir
Tenglar
Signý Björk
Vinkona
Færeyjar
Ýmislegt
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.1.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 38083
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég sé að þetta hefur verið vel heppnaður dagur hjá ykkur.
Linda litla, 22.3.2008 kl. 14:38
og ég sem missti af öllu dem
Ólafur fannberg, 22.3.2008 kl. 22:40
Þetta var snilladar dagur og virkilega gaman að hitta þig og fjölskyldu þína......
Við hefðum getað talað endalaust saman og gerum það seinna
Solla Guðjóns, 23.3.2008 kl. 14:57
Bestu þakkir fyrir komuna! Hún Sollan okkar er alveg frábær kjéddling! Gaman að hitta þig og ég var lengi að bræða með mér hver þú ert!
Frábært að hitta þig og fjölskylduna. Verst hvað lítill tími gafst í spjall en það tek ég síðar, eða í sumar bara.
www.zordis.com, 23.3.2008 kl. 18:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.