Lúxuslíf fjöryrkjans

Ásdís fjöryrki bað mig að senda sér nokkra punkta, varðandi lúxuslífið sem öryrki.Wink

Ég settis í dag yfir bókhaldið, fann bara 3 bréf frá Tryggingarstofnun frá  í ár, varðandi bætur sem mér hefur verið ofgreiddar, heildasumman á skuld minni við TR er 86.944 kr.

Svo eru það vaxtabæturnar. Um áramótin 2005-2006 hækkaði Fasteignamat Ríkisins mat á íbúðum, og þau áramótin varð ég sko alveg ferlega rík, allt í einu. Jú íbúðin mín hækkaði um rúmar 5 millur, váááá. Og þar sem ég varð skyndilega svo rík og mikil stóreignarmanneskja að þá fór ég úr því að fá fullar vaxtabætur sem í dag eru 218.042 kr á ári í það að fá 0 kr.

Svo er það lífeyrissjóðurinn Gildi sem hefur ákveðið að lækka lífeyrisgreiðslurnar hjá mér um 24.443 kr á mánuði eða um 293.316 kr á ári.

Þannig að samanlagt er ég að skulda og lækka í greiðslum sem nemur 598.302 kr á ári.

Enn það er allt í lagi, ég er nefnilega svo rík og með svo miklar mánaðartekjur, ég er öryrki og það er sko ekkert mál að lækka um þessa upphæð. Ég sleppi bara eitthvað af þessum óþarfa lúxus sem ég er endalaust að veita mér. Angry Devil  Pinch

 Viljið þið PLÍÍÍÍS muna eftir undirskriftarlistanum LEIÐRÉTTUM KJÖR ÖRYRKJA OG ALDRAÐRA. Undirskriftirnar eru orðnar 3272, en við viljum fleirri, látið það fréttast.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Ingunn, hvað er hægt að segja annað en AAAARRRGGGG!!!!

Ragnhildur Jónsdóttir, 27.10.2007 kl. 12:44

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Sendu á mig stutta samantekt, við mætum svo galvaskar þú veist :):)

Ásdís Sigurðardóttir, 27.10.2007 kl. 23:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ingunn Jóna Gísladóttir

Höfundur

Ingunn Jóna Gísladóttir
Ingunn Jóna Gísladóttir
Móðir, áhugaljósmyndar og tekjuhár öryrki. Og Fjöryrki  ingunnjg@internet.is
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 512_IMG_8569
  • 512_IMG_8534
  • 512_IMG_8509
  • 512_IMG_8485
  • 512_IMG_8609

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 37858

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband