SNILLINGAR MEÐ FJÁRMÁLAVIT

Ég horfði á Silfur Egils á Gamlársdag, þar voru ansi margar og skemmtilegar umræður í gangi. Inn á milli var svo rætt við fólk sem var beðið um að segja sína meiningu og sitt val á Skussa ársins og fleirra, þegar koma að meiningu viðmælenda um Stjörnur ársins þá verð ég að segja að hann Aðalsteinn Baldvinsson, formaður verkalýðsfélags Húsavíkur og nágrennis var með athyglisverðasta valið á STJÖRNUM ÁRSINS

Aðalsteinn Baldvinsson sagði: "Stjörnur ársins fyrir mér eru, láglaunafólkið, það eru öryrkjar og ellilífeyrisþegar, sem þrátt fyrir alla hagsældina sem verið hefur á Íslandi, búa við kjör sem eru fyrir neðan skilgreind fátækramörk, sem eru í kringum 130.000 krónur á mánuði. Ég vil meina að aðeins snillingar með mikið fjármálavit geti framfleytt sér á þessum tekjum, en reyndar á það ekki að vera hægt."

Þessi ummæli hans Aðalsteins fannst mér vera alveg frábær og svo rétt. Því það þarf mikla fjármálakunnáttu til að lifa af á þessum tekjum á Íslandi og það er þó nokkur stór hópur fólks sem þarf að framfleyta sér á þessum tekjum.
 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eiríkur Harðarson

Þarna er ég virkilega sammála, þó maður hafi nú lítið á móti hundum þá þótti mér lítið til þess koma að vera að nefna þennan Lúkas. Aftur á móti hafa verkamenn/konur fyllilega unnið til þess að vera í hópi stjarna ársins, ekki má gleyma fjöryrkjunum og þeim sem ljáðu undirskriftarlistanum nafn sitt. Samt er eins og þessir "ráða" menn haldi að þeir séu ekki kosnir nema að til moka undir eigin rass,

Eiríkur Harðarson, 2.1.2008 kl. 13:43

2 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Gleðilegt ár Ingunn mín !!   Frábær ummæli! Já þetta er sko alveg rétt hjá honum!

Hafðu það gott og sjáumst fljótlega í fjöryrkjakaffi, er það ekki?

Bestu kveðjur

Ragga

Ragnhildur Jónsdóttir, 2.1.2008 kl. 16:16

3 Smámynd: Ingunn Jóna Gísladóttir

Jú, auðvita erum við  fjármálasnillingar, við erum enn á lífi.  Við verðum að fara að hittast fljótlega aftur, í kaffi og konfekt

Ingunn Jóna Gísladóttir, 2.1.2008 kl. 16:38

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Gleðilegt ár gullið mitt.  Já, hann Kúti minn klikkar ekki á réttu orðunum.  Kúti (Aðalsteinn) er náttl. Húsvíkingur eins og ég og þekkti ég hann vel í den, hann er þó aðeins yngri en ég. Sjáumst fljótlega

Ásdís Sigurðardóttir, 2.1.2008 kl. 18:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ingunn Jóna Gísladóttir

Höfundur

Ingunn Jóna Gísladóttir
Ingunn Jóna Gísladóttir
Móðir, áhugaljósmyndar og tekjuhár öryrki. Og Fjöryrki  ingunnjg@internet.is
Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Nýjustu myndir

  • 512_IMG_8569
  • 512_IMG_8534
  • 512_IMG_8509
  • 512_IMG_8485
  • 512_IMG_8609

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband