2.1.2008 | 16:34
Risaeðla í Páfagarði
Páfinn lofar náttúrulegar fjölskyldur, sem er hjónaband karls og konu, segir það vöggu lífsins og ástarinnar og frumkraftur og ófrávíkjanleg skilyrði friðar.
Talar Páfinn af reynslu? Þvílíkur forneskju hugsunarháttur hjá manninum. Hvað er hann að meina, að ef allir væru gagnkynhneigðir að þá væri alheimsfriður? Er maðurinn að halda því fram að hommar og lesbíur eru megin orsök ófriðar í heiminum? Páfinn er nú yfirmaður Kaþólsku kirkjunnar og fréttir seinustu ára hafa nú ekki verið góðar fyrir hans vinnustað og hans undirmenn, veit ekki betur en ein mesta misnotkun á ungum drengjum eigi sér stað innan kirkjunnar sem hann er í forsvari fyrir. Eru ekki flestir ítalskir mafíósar kaþólikkar? Þvílíkur hroki í blessaða manninum, hann er eins og strúturinn með hausinn ofan í sandinum.
Flest allur ófriður í heiminum er tengdur trú og trúarofstæki. Og hefur ekkert með hjónaband karls og konu að gera, og það er alveg örugglega ekki samkynhneigðum að kenna að það er stríð og ófriður í heiminum í dag.
Lofar náttúrulegar fjölskyldur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Ingunn Jóna Gísladóttir
Tenglar
Signý Björk
Vinkona
Færeyjar
Ýmislegt
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 38058
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Við erum náttúrulega öll fjölskyldur en veit ekki með náttúruna í öðrum, mín er o.k. hí hí hvernig líður þér annars stelpa. ?? heyrumst.
Ásdís Sigurðardóttir, 2.1.2008 kl. 18:16
sammála þessu með risaeðluna
Ólafur fannberg, 2.1.2008 kl. 18:19
Gleðilegt nýár gæskan.
Veit ekkert hvað Páfinn er að gala þetta...
Allir fæðast náttúrulega eða hvað?????
Já Græðgi og trúarofstæki valda ófrið í dag og eins langt aftur heimildir ná.
Solla Guðjóns, 2.1.2008 kl. 19:58
Nákvæmlega...... talar hann af reynslu ?? hehe
Linda litla, 3.1.2008 kl. 00:10
Þegar maður kynnir sér tildrög stríðs þá kemst maður að því að sjaldnast eru það trúarástæður sem liggja að baki stríðs. Þær eru þó stundum notaðar sem afsakanir. Það kom mér til dæmis mikið á óvart þegar ég rak augun í það að flestir sjálfsmorðsárásarmenn á árabilinu 1980-2003 væru trúleysingjar en ekki múslimar. Hafði alltaf þær grillur að þeir væri fjölmennastir.
Davíð (IP-tala skráð) 3.1.2008 kl. 23:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.