20.2.2008 | 12:57
Frestun, arrrrrggg
Ég er smá pirruð núna, fékk tölvupóst frá lögfræðingnum mínum um það að dómsuppkvaðningin sem átti að vera á föstudaginn í málinu varðandi íbúðina, verður frestað til miðvikudagsins 27.febrúar. Annar meðdómarinn er erlendis og því varð þessi frestun
Ég verð bara að segja það að ég er að verða ferlega þreytt á þessum endalausu töfum á þessu blessaða málaferli. En ég verð víst að draga andann djúpt og bíða í 5 daga í viðbót, ég lifi það ábyggilega af, er búin að standa í þessu stappi og baráttu í sjö og hálft ár og vill fara að ljúka þessu, en ég er samt pirruð.
Um bloggið
Ingunn Jóna Gísladóttir
Tenglar
Signý Björk
Vinkona
Færeyjar
Ýmislegt
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Andsk....... óþolandi svona frestanir. Vona að þér líði vel í dag mín kæra.
Ásdís Sigurðardóttir, 20.2.2008 kl. 13:45
Mér líður bara vel í dag, eftir góðan nætursvefn, loksins eftir nokkra vikna lélegan svefn Vona að þú farir nú að heyra eitthvað frá Gauta.
Ingunn Jóna Gísladóttir, 20.2.2008 kl. 14:22
æjæjæj, þýðir þetta að kampavínsflaskan þurfi að bíða lengur eftir ykkur? ég sem var sjálfur svo spenntur að hringja í ykkur annað kvöld og heyra úrskurðinn..
Jæja... sigurinn verður bara sætari eftir lengri bið:) ekki satt?
Gísli Sigurður, 21.2.2008 kl. 22:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.