Færsluflokkur: Bloggar

Bloggletin búin

Þjáðist af einhverri bloggleti um helgina, var að vinna í myndunum mínum og prenta á striga sem koma bara ofboðslega vel út, prentaði gamla krúttlega mynd sem ég á af pabba, ég er alls ekki hlutlaus en mikið ofboðslega var pabbi mikið krútt þegar hann var lítillInLove

3

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Í dag átti ég svo tíma í endurkomu hjá doksa, fékk betri upplýsingar um aðgerðirnar, hann sagði mér reyndar frá þeim strax eftir aðgerðirnar, en þær upplýsingar fóru inn um annað og út um hitt, maður meðtekur lítið sem ekkert þegar svæfingin er enn í hausnum á manni.Wink Ytri liðþófinn í hnénu var illa farinn og þurfti að fjarlægja hann næstum alveg, svo var þó nokkuð slit undir hnéskelinni sem var hreinsað og henni komið fyrir á sínum stað. Hnéið var mikið verr farið en myndirnar sýndu, en nú er það komið í lag. Liðbandið í mjöðminni var allt of strekt og stíft, sem olli bölvuðum kvölum, smellir og fóturinn endalaust að gefa sig.  Um leið og doksi skar í liðbandið þá gliðnaði það strax og tognaði á því, hann þurfti að skera nokkrar raufar í það, gerði spagettí úr þvíGrin þannig að nú er bara að bíða og sjá hvort að þetta hafi nú ekki hjálpað til við það vandamál. Ég á alla vega auðveldara með að sitja, það eru ekki nema tæpar 3 vikur síðan aðgerðirnar voru gerðar, þannig að það tekur víst smá tíma að jafna sig og komast á fullt skrið. Hann sagði að það voru miklar líkur á því að liðbandið hefði slitnað ef ég hefði ekki farið í aðgerðina, þar sem það var svona strekt. 

Doksi bannaði mér allt hásökk og langstökk og hlaup í heilan mánuðWhistling stökkið mitt á Gamlárskvöld  var ekki planað, bara ósjálfráð viðbrögð. Eftir stökkið kom vökvi inn í liðinn og bólgur, þannig að ég verð að fara í sjúkraþjálfunGetLost, ég ekki alveg sammála en hann sagði að ég ætti að lifa það af að fara í þjálfun, þar sem ég hef aldrei farið eftir neina aðgerð hjá honum og honum finnst nauðsynlegt að þjálfa fótinn eftir 3 aðgerðir á sama fæti á hálfu ári. OK, ég verð að hlíða, þá kemst ég fyrr af stað út með myndavélina.

Litli guttinn fór loks í dag til taugasálfræðingsins, það var 2 klukkutíma próf, spurningar og spjall, svo eigum við og kennarar að svara spurningarlistum og skila til hans. Þannig að við fáum svör úr því öllu eftir mánuð. Þar sem Gunnlaugur Þór er búin að breyta kerfinu, þá þurftum við ekkert að borga fyrir að fara með guttan til taugasálfræðingsins í dag, hann tók á móti honum á göngudeildinni á Barnaspítalanum, en ef við hefðum komið til hans á stofunni út í bæ, þá hefði þetta kostað um það bil 30-35.000 kr.  Þvílkur mismunur, eftir því hvert maður fær tíma á spítala eða á stofu út í bæCrying 


Er að verða kominn á fulla ferð.

Hef fengið nokkrar fyrirspurnir um heilsuna eftir aðgerðirnar, þannig að þá er best að koma með fréttir af því. Ég er öll að hressast, er farinn að keyra fyrir nokkru síðan eða um leið og jólafríinu hjá bílnum mínum lauk.  Fæ ekki lengur verki í hnéið þegar ég stíg á kúplinguna, þannig að doksa hefur tekist að laga  það og mjöðmin orðin það góð að ég er farinn að geta sofið aftur á uppáhalds hliðinni, þeirri vinstri.

Að vísu kom smá bakslag á Gamlárskvöld, ein rakettan var ekki til í að fara upp í loft eins og ráð var gert fyrir, ég stóð rétt hjá henni á betri fætinum, til að hvíla hinn, svo þegar að við sáum að bölvaði flugeldurinn ætlaði bara að springa við lappirnar á okkur, þá var ekkert um annað að ræða en að koma sér undann. Karlinn tók prinsessuna í fangið og stökk af stað, ég snéri mér við og stökk yfir hekkið og þar sem ég stóð í betri fótinn að þá var ekkert um annað að velja en að lenda á þeim veikari. Ég verð að viðurkenna að hnéið mótmælti hástöfum og ég fann fyrir því alla nóttina, þannig að í staðinn fyrir að fá mér kampavínið um miðnætti, þá var það bara kók(Drykkurinn) og verkjatöflur.  Mig grunar að það er kominn vökvi inn á hnéið þannig að doksi verður þá að tappa af eftir helgina þegar ég á endurkomutíma, á dýra nýja taxtanum.Angry

Doksi er algjör snillingur í saumaskapnum, örið var bara mjög flott þegar ég tók umbúðirnar af, ég er ofboðslega ánægð hvað það leit vel út, þar sem það er 12 cm. langt. Doksi var að vísu í sama skóla og ég, þannig að ég veit að hann fékk frábæra kennslu í handavinnu hjá Ingibjörgu og Helgu handóðu eins og við kölluðum hana og svo var líka mjög góð smíðakennslan hjá Lalla staur. Þess vegna valdi ég hann sem lækni, vissi að hann hafði fengið góða handavinnu og smíðakennslu í barnaskólanum, sem nýtist honum vel sem bæklunarlækniW00t Nei, svona án gríns þá er hann alveg frábær doksi, einn af fáum sem ég treysti 100% fyrir mínum dýrmæta líkamaWhistling. Svo er hann náttúrulega gall harður Frammari eins og ég, sem er ekki verraLoL  


Risaeðla í Páfagarði

Páfinn lofar náttúrulegar fjölskyldur, sem er hjónaband karls og konu, segir það vöggu lífsins og ástarinnar og frumkraftur og ófrávíkjanleg skilyrði friðar.

Talar Páfinn af reynslu?  Þvílíkur forneskju hugsunarháttur hjá manninum. Hvað er hann að meina, að ef allir væru gagnkynhneigðir að þá væri alheimsfriður? Er maðurinn að halda því fram að hommar og lesbíur eru megin orsök ófriðar í heiminum? Páfinn er nú yfirmaður Kaþólsku kirkjunnar og fréttir seinustu ára hafa nú ekki verið góðar fyrir hans vinnustað og hans undirmenn, veit ekki betur en ein mesta misnotkun á ungum drengjum eigi sér stað innan kirkjunnar sem hann er í forsvari fyrir. Eru ekki flestir ítalskir mafíósar kaþólikkar?  Þvílíkur hroki í blessaða manninum, hann er eins og strúturinn með hausinn ofan í sandinum.

Flest allur ófriður í heiminum er tengdur trú og trúarofstæki. Og hefur ekkert með hjónaband karls og konu að gera, og það er alveg örugglega ekki samkynhneigðum að kenna að það er stríð og ófriður í heiminum í dag.

 


mbl.is Lofar náttúrulegar fjölskyldur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SNILLINGAR MEÐ FJÁRMÁLAVIT

Ég horfði á Silfur Egils á Gamlársdag, þar voru ansi margar og skemmtilegar umræður í gangi. Inn á milli var svo rætt við fólk sem var beðið um að segja sína meiningu og sitt val á Skussa ársins og fleirra, þegar koma að meiningu viðmælenda um Stjörnur ársins þá verð ég að segja að hann Aðalsteinn Baldvinsson, formaður verkalýðsfélags Húsavíkur og nágrennis var með athyglisverðasta valið á STJÖRNUM ÁRSINS

Aðalsteinn Baldvinsson sagði: "Stjörnur ársins fyrir mér eru, láglaunafólkið, það eru öryrkjar og ellilífeyrisþegar, sem þrátt fyrir alla hagsældina sem verið hefur á Íslandi, búa við kjör sem eru fyrir neðan skilgreind fátækramörk, sem eru í kringum 130.000 krónur á mánuði. Ég vil meina að aðeins snillingar með mikið fjármálavit geti framfleytt sér á þessum tekjum, en reyndar á það ekki að vera hægt."

Þessi ummæli hans Aðalsteins fannst mér vera alveg frábær og svo rétt. Því það þarf mikla fjármálakunnáttu til að lifa af á þessum tekjum á Íslandi og það er þó nokkur stór hópur fólks sem þarf að framfleyta sér á þessum tekjum.
 


Gleðilegt ár

Kæru bloggvinir og allir landsmenn ég vill óska ykkur öllum Gleðilegt ár og þakka fyrir það gamla.

Áramótakveðjur

512_IMG_5076

Kæru bloggvinir og allir landsmenn, ég vill óska ykkur öllum hestaheilsu, gleði og friðar á komandi ári.

Þakka öllum sem hafa lesið bloggið hjá mér og kommentað, takk til allra yndislegu bloggvinanna fyrir skemmtileg samskipti á árinu sem er að líða.

Bestu áramótakveðjur til ykkar allra.


Búin að teppaleggja

Jæja, þá eru handklæðin komin á gólfin og ég komin í stígvélin,Grin búin að fá mér heitt kakó og slappa af fyrir framan tölvuna. Ég verð nú að viðurkenna að þetta er pínu þreytandi, hundleyðinlegt veður marg oft í mánuði og að þurfa að teppaleggja heimilið með handklæðum til að reyna að draga úr vatnsskemmdum.

En þessu veseni fer nú að ljúka, aðalmeðferðin í gallamálinu gegn byggingarfyrirtækinu og tryggingarfélaginu verðu nú í janúar. Dómarinn búin að lofa því að hún taki ekki langan tíma frá aðalmeðferð þar til hún fellur dóminn í þessu máli. Það verður æðislegt þegar þessari baráttu lýkur. En þangað til að þessu lykur og hægt verður að byrja að laga heimilið, þá verðum við bara að teppaleggja reglulega og vera í stígvélum og flíspeysu W00t Það eru ekki öll börn jafn heppin og mín að geta sullað í pollum innandyraTounge


Veðrið er að versna

Þá er það enn einn stormurinn á leiðinni, hafa blessuðu hjálparsveitirnar ekki fengið nóg að gera þennan mánuðinn. Nú er flugeldasalan komin á fullt hjá þeim og vakt allan sólahringinn í tengslum við það og svo verður víst eitthvað fjör í Kára í nótt og þá verða björgunarsveitirnar kallaðar út aftur.

Veðrið er að skella á, við fjölskyldan vorum að koma heim núna rétt áðan, búum í Staðarhverfinu í Reykjavík og fjörið er byrjað hér. Tveir bílar pikk fastir upp við Korpúlfsstaðina, nokkrir úti með skóflurnar að reyna að losa þá. Færðin er að verða hundleiðinleg, mikið fjúk og þá myndast þessir æðislegu snjóskaflar alls staðar og bílarnir annað hvort sygla í gegnum skaflana eða þá að þeir hringsnúast og festast.

Nú er bara kominn tími á að hita sér kakó með rjóma, hendast upp í sófa með fjölskyldunni og njóta þess að vera kominn heim.  


mbl.is Stormi spáð á öllu landinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábær leikur

Til hamingju strákar, þetta var alveg frábær leikur hjá ykkur.  Þið eruð bestirWizard

Fram stelpurnar töpuðu fyrir ValFrown og fengu því ekki bikarinn, en strákarnir sigruðu Hauka og það bjargaði deginumGrin Hefði verið æðislegt að fá tvöfaldan sigur, en því miður voru stelpurnar bara ekki að spila nógu vel í dag, hafa kannski borðað of mikið yfir JólinBlush.

512_IMG_0577 Ekki alveg sáttar við silfrið.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

512_IMG_0596 Strákarnir voru mjög ánægðir eftir leikinn, hér þakka þeir stuðninginn.


mbl.is Fram vann deildabikar karla, deilt um mark
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bíllinn fór í Jólafrí

Elsku bílinn minn ákvað að fara í jólafrí. Hann dó þegar við vorum að rúnta um á Þorláksmessu og klára að versla það sem þurfti fyrir hátíðirnar. Hann hafði þó vit á því að deyja á bílastæðinu hjá Bónus í Spönginni, bara neitaði að fara í gang, enda búin að spila dúndrandi tónlist í honum síðan ég keypti hann nýjan fyrir átta og hálfu ári síðan. Ég vissi að hann var orðin tæpur á rafmagni þannig að ég mátti svo sem búast við þessu, bara ekki á þessum degiBlush

En alla vega, eins og alltaf hringdi ég í elsku pabba sem kom 5 mínútum seinna og gaf okkur start þannig að við komumst heim og svo ákváðum við að leifa bílnum að fá jólafrí, hann átti það skilið, hefur aldrei bilað á öllum þessum árum. Notuðum stóra drekann um Jólin, þoli ekki þann bíl, 9 manna strætó sem drekkur bensínið, en ég nota hann þegar fóturinn á mér bilar, þar sem hann er sjálfskiptur.

Fór svo í dag með elsku bílinn minn og lét mæla rafgeyminn á honum,  eins og ég vissi var geymirinn steindauður, starfsmennirnir hjá Skorra ætluðu varla að trúa því þegar þeir tóku geyminn úr bílnum, orginal geymirinn var fyrst núna að gefa upp öndina enda orðin átta og hálfs árs eða jafn gamall og bílinn.  Algengur líftími á rafgeymir er um 3-5 ár, þannig að sá franski er heldur betur búin að standa fyrir sínu og fékk því sína endanlegu hvíld í dag. 

En þar sem grunnlífeyrinn hjá TR hækkar um 869 kr á mánuði, þá hafði ég efni á því að fjárfesta nýjum geymi, miðað við þessar 869 krónur, þá tekur það bara ca. 16 mánuði að borga fyrir nýja geyminn W00t Varð aðeins að leika mér með tölur og hækkanir á bótunumWizard


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ingunn Jóna Gísladóttir

Höfundur

Ingunn Jóna Gísladóttir
Ingunn Jóna Gísladóttir
Móðir, áhugaljósmyndar og tekjuhár öryrki. Og Fjöryrki  ingunnjg@internet.is
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 512_IMG_8569
  • 512_IMG_8534
  • 512_IMG_8509
  • 512_IMG_8485
  • 512_IMG_8609

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband