Handboltahelgi

Hef verið í smá blogg leti. Er búin að vera í nóg að snúast með börnin, í fyrradag var skólaskemmtun hjá strákunum og þurfti ég að setjast niður og sauma búninga og hjálpa þeim að finna föt og dót fyrir þeirra atriði.  Skutlan neitaði að koma með á skemmtunina, þannig að hún fékk bara að vera lengur í leikskólanum. Hún er svo ánægð á leikskólanum að hún væri til í að vera þar allan sólahringinn, á meðan hún er ánægð þá er ég ánægð.

Í dag erum við svo að fara á Selfoss, yngri prinsinn er að fara á handboltamót sem haldið er á Selfossi, það er búin að vera mikil tilhlökkun að fara út á land að keppa. Svo í fyrramálið er skutlan okkar að fara að keppa í Garðabæ. Þannig að það verður handboltahelgi hjá okkur,  þau standa sig alveg örugglega betur en meistaraflokkur karla í Fram gerði um seinustu helgiLoL 

Unglingurinn ætlar ekki með á Selfoss, hann er að fara á Samfés skemmtunina í Laugardalshöllinni í kvöld, þar ætlar hann að hitta einhverjar stelpur sem þeir kynntust á LaugumHeart, það er nú búið að liggja á MSN síðan þeir komu til baka og svo hverfur inneignin á gemsanum hjá þeim. Stelpurnar búa á Ólafsvík, þannig að loksins geta þau séð hvort anað aftur, eftir langa biðWink

512_IMG_7882

 

 

 

 

Yngri strákurinn lék ungabarn í skólaleikritinu.

 

 

 

 

 

 

 

 

512_IMG_7947 

Unglingarnir tóku Blúsbræðra sveiflu og voru bara ferlega flottir. 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

512_IMG_7382 

Stefán Óli á fleygiferð á seinasta handboltamóti, hárið blátt og allt í stíl.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

512_IMG_7251

 

Prinsessan með verðlauna- peninginn sinn á Ákamótinu í seinasta mánuði. 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Kæru blogg vinir óska ykkur góðrar helgi. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Linda litla

Það er alltaf nóg að gera hjá þér Ingunn, eða þér og þínum.

Eigðu góða helgi, og reyndu líka að slaka aðeins á.

Linda litla, 7.3.2008 kl. 12:09

2 Smámynd: Ólafur fannberg

góða helgi

Ólafur fannberg, 7.3.2008 kl. 14:51

3 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Fullt að gera á þínum bæ! Yndisleg börnin þín, það leynir sér ekki.

Hafðu góða helgi Ingunn mín 

Ragnhildur Jónsdóttir, 7.3.2008 kl. 17:21

4 Smámynd: Huld S. Ringsted

Eigðu góða helgi Ingunn mín

Huld S. Ringsted, 7.3.2008 kl. 21:53

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Flottir krakkar sem þú átt.  Ertu ekki að fara vel með þig. ??  Kær kveðja. Pisces 

Ásdís Sigurðardóttir, 7.3.2008 kl. 22:13

6 Smámynd: Solla Guðjóns

FLOTTIR KRAKKAR!!!!!!

Já þetta er sko helgi unglinganna...SAMFÉS......Einn ógó sætur frá Siglufirði

Eigðu góða helgi

Solla Guðjóns, 8.3.2008 kl. 13:49

7 Smámynd: Brynja skordal

hafðu ljúfan og góðan sunnudag mín kæra

Brynja skordal, 9.3.2008 kl. 01:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ingunn Jóna Gísladóttir

Höfundur

Ingunn Jóna Gísladóttir
Ingunn Jóna Gísladóttir
Móðir, áhugaljósmyndar og tekjuhár öryrki. Og Fjöryrki  ingunnjg@internet.is
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 512_IMG_8569
  • 512_IMG_8534
  • 512_IMG_8509
  • 512_IMG_8485
  • 512_IMG_8609

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband