Málinu áfrýjað til Hæstaréttar

Þá er búið að taka ákvörðun um það að áfrýja málinu til Hæstaréttar. Lögfræðingurinn minn hafði samband í gær, hann var búin að lesa allan dóminn og nokkri aðrir lögfræðingar líka og þeir voru allir sammála að þessum dómi ætti að áfrýja. Þannig að það var ekki bara mín óhlutslausa meining, svo að nú er allt komið á fullt aftur. Ég er búin að sækja fleirri teikningar og í fyrramálið ætla ég að mæta í viðtals tíma hjá Byggingarfulltrúa Reykjavíkur og fá það bara á hreint hvernig á að túlka og framkvæma byggingarreglugerðir og hvort leifilegt sé að fara á svig við þær á einhvern hátt.

Ég ætla bara að vona að byggingarstjórinn hafi ekki fagnað of mikið eftir að hann var sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur, Hæstiréttur er eftir. Tounge

Í gær fór ég svo í sjúkraþjálfun, nú á að byrja að taka á því af alvöru, reyna að styrkja hnéið og lærvöðvan. Það var frekar sárt að taka á því, en sjúkraþjálfarinn hló ansi mikið þegar ég gerði æfingar með lærvöðvanum, það eru þvílíkir skjalftar að ég minnti hann á ný fætt folaldLoL Hann er að vonast til að geta náð upp smá krafti í fótinn, að fóturinn er ekki orðins svona rýr og máttlaus út af bakinu, því þá telur hann að það er lítið hægt að gera til styrkja fótinn almennilega. Það kemur bara í ljós með tímanum hvernig það gengur en ég get alla vega gengið þokkalega og það dugar í bili.  Ég er of þrjósk til að gefast upp í neinni baráttu, þannig að ég held bara ótrauð áfram.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brynja skordal

Vonum það besta þú ert baráttu kona knús inn í daginn

Brynja skordal, 12.3.2008 kl. 14:47

2 Smámynd: Gísli Sigurður

Gangi þér vel elskan :)  Kíki örugglega á þig á eftir! Verðurðu heima um fimm-sexleytið?

kær kveðja - Gísli Sigurður 

Gísli Sigurður, 12.3.2008 kl. 15:12

3 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Góðan bata  vinan og láttu ekki borgarfígúrurnar valta yfir þig,gott mál að áfrýja.Kveðjur til þín

Magnús Paul Korntop, 12.3.2008 kl. 18:03

4 Smámynd: Solla Guðjóns

Baráttukveðjur

Solla Guðjóns, 12.3.2008 kl. 21:33

5 Smámynd: Ólafur fannberg

berstu baráttukveðjur

Ólafur fannberg, 12.3.2008 kl. 22:25

6 Smámynd: Linda litla

Þú tekur nú þessa sjúkraþjálfun bara í nefið, ferð létt með það. Verður farin að sparka í sjúkraþjálfann áður en hann veit af

Linda litla, 12.3.2008 kl. 23:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ingunn Jóna Gísladóttir

Höfundur

Ingunn Jóna Gísladóttir
Ingunn Jóna Gísladóttir
Móðir, áhugaljósmyndar og tekjuhár öryrki. Og Fjöryrki  ingunnjg@internet.is
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 512_IMG_8569
  • 512_IMG_8534
  • 512_IMG_8509
  • 512_IMG_8485
  • 512_IMG_8609

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 37835

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband